Jájájá…hér er bara gaman, Helga er byrjuð í sjálboðavinnu á leikskóla sem er mjög gaman og hefur fengið vilyrði fyrir því að taka grænmetisgarðinn í gegn muahahaha. Hún þurfti að fara í fingrafaraskann og berklapróf í vikunni og er hvorki á sakaskrá né með berkla svo lífið er gott. Hjólið hennar er búið að vera bilað svo hún skipti því út fyrir nýtt um helgina….hérna eru þau skötuhjúin (flassið gerir gömlu rauðu drusluna bara skínandi fína).
Addi vinnur og vinnur og vinnur og við reynum að vakna snemma um helgar svo við getum gert eitthvað skemmtilegt ![]()
Í dag (laugardag) fórum við að kaupa hjólið sem við fengum á 11 þúsundkalla og svo fórum við í hjólatúr í sólinni niður að San Fransisco bay og svo Indverskur hádegismatur. Já, hver helgi getur verið eins og sumarfrí ef maður bara drullar sér af stað
Allaveganna…Helga er búin að vera með tré á heilanum alla vikuna og tekið myndir af því sem snertir hjartað og lyftir andanum.
ber á sterum..
bólutré og skemmtilegir skuggar..
bara tré í potti…soldið stórum potti.
Það væri nú ekki amarlegt að fá svona sendingu í sumarbústaðalandið…ekkert að bíða í 10 ár, fjandinn hafi það!
Ég (Helga) stóð þarna og var að leita að götuskilti…átti nefninlega að fara Palm Drive að Campus Drive. Svo horfði ég upp og sá að þetta hlyti að vera palm drive hehehe
svo krúttó..
Hipstertré…fellir börkinn þegar hinir fella laufin.
Einhverskonar sýbrus….stóóór!
VOR!!
Addi keypt sér nýja klifurskó og elskar þá eins mikið og hægt er að elska skó! Klifrar eins og ballerína í þessum elskum…kannski koma klifurmyndir bráðum ef við skellum okkur í klettana fljótlega.
Það var ósk um myndir af húsinu okkar og fleiri af okkur, við sjáum til hvað næsta vika hefur að bjóða….
LOVE!










