Íslensk kona að reka gistiheimili í Indlandi

Ég fékk skilaboð á facebook um að það væri íslensk kona sem væri að reka gistiheimili á Indlandi. Nánar tiltekið í Fort Kochi. Við vorum þar fyrir nokkrum vikum og það var frábær staður, en því miður vissum við ekki af þessu fyrr en við vorum farin þaðan.

Konan heitir Þóra Guðmundsdóttir og heimasíðan hennar er mjög dramatísk með introi og öllu. Ég ætla samt að hjálpa ykkur og gefa ykkur beinan link á heimasíðuna hennar, án introsins: http://www.secretgarden.in/welcome.html

Spurning hvort maður hafi einhverntíma tækifæri á að fara þangað. Það væri gaman að hitta Íslending hérna. Þessi staður lítur allavega vel út.

Posted in Uncategorized | Tagged , , , , , , | 1 Comment

Varkala, Kerala – Sól, sandur og surfin'

Eftir að hafa farið í frekar þéttsetna skoðunarferð í nokkra daga og endað svo á skítugu hótelherbergi í Alleppey, þá var sweet að mæta á ströndina í Varkala í þvílíka túristaparadís.

Varkala er allt öðruvísi en aðrir staðir sem við höfum komið til á Indlandi. Svona týpískur sumarfrís-staður, sandur, sól og hvítt fólk í meirihluta…eitthvað sem við höfum ekki séð áður. Það voru nokkrar “vestrænar” fjölskyldur sem er líka mjög óalgeng sjón í þessu stóra landi. Þarna var fólk greynilega komið til þess að slaka á, fara í sólbað og spila skák.

Við gistum á litlu gistiheimili sem ber heitið Baby House sem rekið er af hinum hressa Sham. Hann skírði staðinn Baby House vegna þess að mamma hans hafði gefið honum jörðina og hún hét þessu skemmtilega nafni, Baby. Helga fór á viku yoga námskeið sem haldið var upp á þaki á gistiheimilinu. Það voru því miður engar myndi teknar af herlegheitunum.

Vinir okkar, Tom og Rachel (hver man ekki eftir þeim :) ), komu til Varkala stuttu seinna og við vorum nágrannar á gistiheimilinu.

Öldurnar við ströndina í Varkala eru víst sterkar og maður fann það um leið og maður steig í þær (nb. að sá sem skrifar hefur eingöngu farið á alvöru strönd 2-3 áður á ævinni og aldrei dýpra en að hnjám)  – Maður fór aðeins út í sjóinn og alltaf þegar maður hélt að allt væri í góðu, þá kom risa stór alda og grípur mann, fleygir manni upp í loftið og dregur mann svo eftir botninum – mjög hressandi :P

Þegar ég var kominn með leið á því að labba út í sjó, standa eins og kjáni, bíða eftir öldu og láta hana dúndra mér í botninn, þá kenndi hinn veraldrarvani Tom Noel mér Bodysurfing og svo seinna þegar sjórinn var mildari, Bodyboarding.

Body Surfing gengur út á að fara út í sjó í brjóstkassadýpt og bíða eftir stórri öldu – svo þegar hún kemur þá byrjar maður að synda skriðsund á fullu í átt að ströndinni – svo kippir aldan manni með þegar hún er að hvolfast yfir og þá er eins og maður fljúgi eða svífi ofan á öldunni, hátt fyrir ofan fólkið í kring um sig á smá ferð.

Þegar ég var nokkurnveginn búinn að ná Bodysurfing á hreint, þá stakk Tom upp á að við fengjum okkur Bodyboards á leigu, því að sjórinn væri hugsanlega ekki lífshættulegur þann dag. Bodyboarding gengur út á nákvæmlega það sama og Bodysurfing, nema að maður leggst á svona lítið ca 1m langt bretti og beitir svo svipaðri tækni við að bursla áfram þegar aldan kemur – En Hólí sjitt!! Það er alveg rosalegt dæmi. Það er erfiðra að hitta á öldurnar, en þegar maður nær þeim, þá dúndrast maður áfram á ógnarhraða og hendist áfram kannski 50m í hverri öldu. Flýtur áfram eins og fleytt kerling. Geðveikt. Verð að prófa þetta í nauthólsvík.

Maturinn í Varkala er ágætur. Það er mikið af sjávarréttum og maður getur oftast valið sér ferskan fisk, krabba, humar, rækjur eða smokkfisk fyrir utan veitingastaðina og þeir elda síðan það sem maður velur. Þar sem þetta er líka túristaparadís þá er auðvitað auðvelt að fá Espresso, hægt er að surfa á netinu á sumum kaffihúsana osfrv.

Bíður þolinmóð eftir lestinni

Bíður þolinmóður eftir lestinni í aðeins meira töff pósu en Helga :)

Varkala ströndin er gull falleg. Hún er þekkt fyrir það að þetta er eina klettabeltið í Kerala sem snýr út að arabíska hafinu.

Það hafði hrunið undan gangstéttinni 2 mánuðum áður í mikilli rigningu.

Yndislega hreina og sæta gistiheimilið okkar: Baby House.

Helga sópar og passar að herbergið haldist hreint.

Helga hlær af því að það er svo gaman að skoða bloggið okkar

Svona var eiginlega hver einasti morgun, borða morgunmat með Tom og Rachel

Hvítt te – besta te sem maður fær

Eðlan borðaði með okkur morgunmat – hún hafði samt ekki mikla list, vildi aðallega skoða blaðið.

Plataður út í lífshættulegt áhugamál: Bodyboarding

Sjórinn leit stilltur út þennan dag

Róa róa róa… aldan alveg að grípa

Og svo á þvílíkri siglingu í átt að ströndinni

Þetta eru kellingarnar sem sjá um að halda við ströndinni – tína upp rusl og raka sandinn.

Stórmeistararnir einbeita sér – Þjónarnir eru oft mjög spenntir fyrir því að fá að spila við mann skák. Í Varkala keppti Addi við tæplega 10 þjóna og vann alla nema einn. Þetta er sterkasti skákspilarinn, Zures (eða Sures), þeir tóku 3 leiki og Addi vann 2/3 – mikill sigur fyrir Ísland.

Þetta Monopoly fór í þvílíkt drama á tímabili þegar reglurnar urðu óskýrar, en endaði samt ágætlega

Helga og Rachel völdu sér þennan disk af tíkrisrækjum…nammnamm!

Kokkurinn í eldhúsinu, eitthvað að undirbúa. Spjótin fara ofaní gat á tandoori ofninum. Gatið er samsagt undir “vok-pönnunni”.

Við örkum af stað í smá búðarráb – markmiðið er að finna buxur, sólarvörn, klósettpappír og sitthvað fleira.

Það eru endalaust af svona búðum víðsvegar um Indland. Allar eins en engin eins.

Addi endaði á að láta Mr. Taylor sníða á sig tvær stuttar buxur, handvaldi efni í þær.

Indversku karlmennirnir hittast stundum á ströndinni, spjalla saman og góna á búbbur. Mjög pirrandi en Þykir samt mjög eðlilegt.

Amma store

Gullmoli úr matseðli – sá sem nær að þýða þetta fær verðlaun

[youtube=http://www.youtube.com/watch?v=4uDFHWjtk70]

Við lentum í smá rigningarsudda – ekkert alvarlegt, en alveg grenjandi

[youtube=http://www.youtube.com/watch?v=CZ1BQa7Poj0]

Eitt kvöldið fórum við á ótrúlega tónleika – hljómsveit frá Alleppey sem var að spila á veitingastaðnum Rose Garden. Þeim gekk mjög erfiðlega að stilla gítarinn eins og heyrist á þessu videoi og náðu ekki að fullkomna það því að í miðjum tónleikum ruddist löggulið á fullu inn á staðinn og handtók alla starfsmenn staðarins fyrir að selja áfengi án leyfis. Eftir stóðu allir matargestirnir og hljómsveitin og fylgdust með lögreglunni fara í gegnum alla pappíra og allt á staðnum. Þegar við fórum frá Varkala var managerinn á staðnum víst ennþá í fangelsi…

Posted in Uncategorized | Tagged , , , , , , | 7 Comments

Video af fíl að leggjast

Ég gleymdi að troða þessu videoi með síðustu færslu, svo hér er stutt færsla bara með videoi

[youtube=http://www.youtube.com/watch?v=3fUF58QIpKI]

Posted in Uncategorized | Tagged , , , , | 1 Comment

3 daga ferð með Tom og Rachel

Í Fort Kochi hittum við par á veitingastað frá Jersey í Englandi, Tom og Rachel. Þau eru búin að vera að ferðast um Indland í einn mánuð núna og við gátum skipst á sögum og reynslum.

Þau byrjuðu í Delhi og hafa ferðast dálítið um norðurlandið og fóru svo niður með vesturströndinni til Mumbai og Goa.

Tom er endurskoðandi/bókari (accountant) og Rachel er tilvonandi heimavinnandi húsmóðir (með mikinn metnað í þeim efnum)

Við hittum þau nokkrum sinnum í Fort Cochin, borðuðum með þeim á veitingastöðum ofl og ákváðum í kjölfarið, eftir miklar ferðaskipuleggjendaviðræður, að taka eina 4 daga ferð með þeim til Munnar og Piraya. Innifalið í ferðinni var allur akstur á milli, stopp á ýmsum stöðum og gisting í 3 nætur.

Okkur var dröslað á fætur af Anesh, brjálaða sveitta bílstjóra kl 6:30 fyrsta morguninn og við héldum af stað.

Fyrsta stopp var til að skoða og baða fíla á þar til gerðum stað. Innfæddir hafa þjálfað og hugsað um fílana í margar kynslóðir.

Það var slatti af ferðamönnum nú strax þegar við komum á staðinn.

Fyrst þegar fílarnir komu arkandi þá sló hjartað í manni semi-ört. Jafnvel þessir litlu barnafílar virtust risastórir. Þeir stara í augun á manni og það er eitthvað innra með manni sem segir manni að þeir geri sér grein fyrir óréttlæti þrældómsins.

Tom óð af stað og byrjaði að baða fyrsta fílinn á fullu – Helga hafði gaman af þessu en Addi rétt þorði að pota í þann minnsta. Bakteríuparanoian, klígjukenndin og almenna hræðslan var of sterk.

Þegar stóru fílarnir með skögultennurnar komu arkandi þá þagnaði yfir mannfjöldanum og maður heyrði hjartsláttinn í fólkinu við hliðina. Þeir virtust samt vera vel þjálfaðir og maður passaði sig að vera í dálítilli fjarlægð frá þeim.

Við komum síðan við einhverstaðar…

Þegar við komum til Munnar var það mikil tilbreyting að finna ferskt loft og ekki nema ca. 20°C hita úti. Enginn raki í loftinu og maður fann fjallagustinn strjúkast um sig. Það var eitthvað við Munnar sem minnti mann mikið á ísland, ég veit ekki hvort það voru te-ekrurnar, fjallaloftið, bragðlausa kaffi-teið eða það að fara upp í rúm að krókna úr kulda, en eitthvað við aðstæðurnar vöktu með manni dálitla heimþrá.

Næsta dag fórum við og skoðuðum te-verksmiðju. Það var farið með okkur í gegnum allt ferlið við að búa til te og þó það hafi verið ágætlega athyglisvert í 2 mínútur þá var það dálítið eins og að vera í skólaferð í grunnskóla og það er ekki í uppáhaldi hjá öllum í hópnum (*Hóst*Adda*hóst)

Eftir þessar tvær frískandi nætur í Munnar og nokkrar lotur af Adda að rústa Tom í skák, héldum við af stað til Periyar. Periyar er svona “wildlife sanctuary” (sama hvað það er á ísl.) – staður með dýrum – Ferðin tók 3 klukkutíma og þegar við komum var komin grenjandi rigning. Planið fyrir eftirmiðdaginn átti að verða fílabaksferð og daginn eftir átti að vera ferð um Periyar með innfæddum leiðsögumanni að leita að tígrisdýrum, fílum, björnum og slöngum.

Því miður var veðrið ekki hliðhollt okkur og við þurftum að fresta bæði skógarferðinni og fílabaksferðinni vegna rigningar og drullu og við keyrðum því öll, síðasta daginn, af stað aftur og enduðum í bænum Alleppey þar sem leiðir fjórmenninganna skildu. Takk fyrir frábæra ferð Tom og Rachel.

Sorry, þetta eru svo margar myndir og tengingin er ekki góð núna, svo ég nenni ekki að setja eina og eina inn í einu… :)

Posted in Uncategorized | Tagged , , , , , , , , | 8 Comments

Erum internetlaus i Alleppey, Kerala

Vid forum i nokkra daga ferd med tveimur bretum i gegnum halendi Kerala (kalt eins og islenskt sumar) og erum nuna i bae sem heitir Alleppy. Netid er sma bilad i fartolvunni, svo blogg faersla kemur ekki alveg strax, vonandi eftir 2 daga.

Kvedja fra Indlandi

Posted in Uncategorized | Tagged , , | 2 Comments

Fort Kochi

Loksins vorum við komin til Fort Cochin (breytt í Fort Kochi nýlega). Þetta er lítill hafnarbær á vesturströndinni með stóra sögu. Höfnin sjálf varð til í miklu flóði 1341 og síðan þá hefur bærinn verið mikilvægur suðupunktur kryddviðskipta á milli Inlands og heimsins. Það byrjaði allt í kringum 1400 þegar Fort Cochin  byrjaði að laða að sér kristna menn, araba og gyðinga frá mið austurlöndum. En það leið ekki á löngu þar til Evrópa kom og vildi að sjálfsögðu eiga pleisið. Portúgalar höfðu völdin frá um 1500 til 1663, en þá komu Hollendingarnir, drápu nokkra Portúgala og tóku völdin í hafnarbænum. Hollendingarnir voru mjög þrautseigir þar sem þeir stjórnuðu höfninni alveg til 1800 það var árið sem Englendingarnir komu, sáu og sigruðu. Þeir réðu ríkjum hér allt til ársins 1947, þegar Indland fékk aftur yfirráð yfir bænum.

fortcochiLoksins að bíða eftir rútu til Fort Kochi!

fortcochi (2)Geiturnar að jórtra á gangstéttarbrúninni…

Þetta er rosalega rólegur og fallegur bær og þó svo að hann sé klesstur uppvið stærra bæjarfélag nú á dögum líður manni samt eins og maður sé í smábæ. hér eru fallegar kirkjur og húsin eru með evrópskum blæ. Meira að segja eru gömlu kournar stundum í svona blóma sloppum eins og maður sér á spáni.

fortcochi (0)Atti á “Teapot”, mjög fallegt kaffihús með góðum mat og eðal-tei!

fortcochi (3)Rafvirkjarnir eru alveg jafn hæfileikaríkir hér í Fort Kochi…hahaha WTF

fortcochi (4)Addi á leiðinni í miðbæjinn, þarna er gömul kella í svona blómaslopp :)

fortcochi (5)Við fórum á Ítalskan veitingastað og Helga fékk alvöru bruchetta…hún var mjög hamingjusöm.

Á ströndinni við miðbæjinn eru bæjarbúar með svokölluð kínversk fiskinet. Engin smá smíði, það er greinilega nóg af fiski því þeir láta þetta bara síga, fiskarnir synda inn í netið og svo er bara að hífa þetta upp!

fortcochi (8)

fortcochi (9)

fortcochi (10)það er mjög greinilegt að Helga er dugleg með sólarvörnina…ennþá soldið hvít!

fortcochi (7)

Addi að vinna að nýrri pósu!

L1070154Hér er annað útibú Café coffee day, sem er aðal uppspretta espresso fyrir Addalinginn. Húsið er byggt utanum þetta tré sem kemur svo út úr þakinu eins og ekkert sé sjálfsagðara. Þeir eru sniðugir Indverjarnir.

Við náðum að fara í eina bátsferð (sérblogg seinna) og svo var Helga orðin veik, frekar leiðinlegt. Hún var með hita og kvef í nokkra daga og svo fengum við laugardag og sunnudag til þess að rölta um bæjinn. Við vorum búin að ákveða að fara á ferðskrifstofu á mánudeginum og fara í einhverja skemmtilega fíla eða safaríferð. Svo kom mánudagurinn og þá var Addi komin með hita….þetta er nú meira ruglið!! Hver ber ábyrgð á þessu öllu saman!!

fortcochi (15)

Fortið (virkið) í Fort Kochi…það er löngu búið að sprengja það í tætlur í áranna árásum. Það sem eftir er hefur sigið í sandinn með árunum…þessar rústir voru grafnar upp, steypt í kringum þær og svo var byggt safn yfir þær. Interesting!

fortcochi (12)Þetta er aðeins minna athyglisvert, en samt flott nafn á húsi…Thakur House!

fortcochi (11)ótrúlega krúttlegt hús og sofandi köttur…

fortcochi (13)Kaffihúsið var ekki með vínveitingaleyfi en það var ekkert mál að fá bjór í dulargerfi…

L1070181Þetta er greinileg ekki te sem Helga þambar!

fortcochi (16)

Vonandi verður Addi orðin góður von bráðar og þá klárum við Fort Cochin, við eigum enn eftir að sjá kryddmarkaðinn og einhverjar kirkjur! Koss og knúsar….

Posted in Uncategorized | Tagged , , , | 9 Comments

Dýragarðurinn í Mysore

Dýragarðurinn í mysore (8)

Við fórum í dýragarðinn í Mysore. Hann er talinn einn sá besti á Indlandi og þar virðist oftast vera nóg pláss fyrir öll dýrin og maður fær það alls ekki á tilfinninguna að þeim líði eins illa og dýrunum í dýragarðinum í Barcelona (sem var frekar sorglegur)

Við náðum ekki góðum myndum af öllum dýrunum, td. öpum, górillum, björnum ofl… svo þessar myndir verða að nægja

Svo tókum við fullt af videoum, en þau voru öll á hreyfingu og ekkert sást á þeim og það var bara eitt sem virkaði… af skjaldböku :D

[youtube=http://www.youtube.com/watch?v=TKc0PlB9LCk]

Það eru reyndar mörg betri video af þessum dýragarði sem við eigum ekki heiðurinn af… ef einhver hefur áhuga á því, þá eru nokkur þeirra hérna:

Skógarbjörn:
[youtube=http://www.youtube.com/watch?v=tj95Jsv4748&NR=1]

Tígrisdýr:
[youtube=http://www.youtube.com/watch?v=YA62MNA48B4&feature=related]

Smá fræðsluyoutubeklippa (ég horfði ekki á hana, en hún er með fíla!)
[youtube=http://www.youtube.com/watch?v=YU_fa9-V2xQ&feature=related]

Posted in Uncategorized | Tagged , , , , , | Leave a comment

Skítakall og indverskur skítakall

Þessi færsla tengist ferðinni okkar eiginlega ekki neitt, heldur bara smá  upplýsingar um hvernig indverskur skítakall gengur fyrir sig. Það hafa margir komið til okkar og grát beðið okkur að kenna sér þennan bráðskemmtilega leik og þar sem það er svolítið erfitt gegnum feisbook eða skype, þá ákváðum við (eða bara Addi) að skrifa reglurnar hérna.

Það þekkja eflaust margir spilaleikinn “skítakall” eða stundum kallaður “þrjár litlar mýs”. Markmið spilsins er dálítið eins og í olsen, losna við öll spilin. Í grófum dráttum eru reglurnar í honum eitthvað á þessa leið (þetta endaði ýtarlegra en ég hugsaði fyrst):

  • Byrjun spilsins
    • Allir fá 3 spil á hvolfi í borð, 3 spil snúa rétt ofan á þau spil (semsagt 6 spil á mann)
    • Allir fá 3 spil á hendi – semsagt, samtals 9 spil á mann með spilunum sem eru í borði
    • (maður má skipta bestu spilunum sínum á hendi út fyrir efri spilin í borði)
    • Afgangurinn af stokknum er settur á mitt borðið
    • Sá sem er með lægsta spilið leggur það út við hliðina á stokknum (3 er lægstur, svo 4, svo 5)
  • Markmið spilsins er að losna við öll spilin af hendi og úr borði (en maður má ekki snerta spilin í borðinu fyrr en í lok spilsins).
  • Síðan gengur spilið í klukkna hring og allir setja, koll af kolli, lægsta spilið sitt sem er samt hærra en spilið sem var sett á undan. Ef Jói setur 6, þá getur Gunni sett 7,8,9,osfrv… Og ef Gunni setur 9, þá setur Hanna td. gosa…
  • Þegar spilari hefur sett út spil, þá dregur hann nýtt úr stokknum.
  • Maður má setja 2-4 eins spil niður (td, 2 fjarkar)
  • Ef spilari á ekkert sem er hærra en spilið sem er niðri, þá þarf hann að taka allan bunkan og setja lægsta spilið sitt niður
  • Gildi spilana
    • Hærra spil er betra, en ás er hæstur – en nokkur spil hafa ákveðna töfra eiginleika:
    • 2 gildir allt
    • 10 gildir allt og “sprengir” bunkan – þeas. ef maður setur 10 út (og þú getur sett 10 á allt), þá tekur maður allt sem var í bunkanum og hendir því til hliðar og þá er það hætt að vera með í spilinu og maður sér spilin aldrei aftur – Ef maður sprengir bunkan, þá setur maður síðan lægsta spilið sitt út
  • ef td. allir fjarkar eru settir út saman, sama hvort þeir voru settir af einni manneskju eða mörgum, þá sprengir það líka bunkan og maður setur síðan lægsta spilið sitt út.
  • Þegar öll spilin í stokknum eru búin og spilari stendur uppi með auða hendi, þá má hann byrja að nota spilin sem hann á í borði en hann verður að setja öll efri spilin 3 fyrst, áður en hann getur sett neðstu 3 – Þar að auki má spilari ekki kíkja á neðstu spilin, heldur nota þau í blindni…
  • Að “lauma” – Ath maður má lauma inn spili, ef td. fjarki er í borði og maður á fjarka, þá má maður henda honum inn á milli þó það sé ekki komið að manni.
  • Mér skilst að reglurnar séu líka þannig að ef þú átt tvö eða fleiri af einhverju spili, þá verðuru að setja þau öll þegar þú setur spilið út og maður verður líka alltaf undir öllum kringumstæðum að setja lægsta spilið sem maður á, út.
  • Áhætta: Ef þú átt ekkert spil sem passar, þá máttu líka taka áhættu. Þá seturði í blindni efsta spilið í stokknum á bunkan – ef það passar, þá ertu sloppin(n) en ef ekki, þá dreguru bara bunkan eins og áður, en ert komin(n) með enn fleiri spil á hendi

Ég man ekki meira og þetta er mikið ýtarlegra en ég ætlaði að hafa það.. ég er örugglega að gleyma einhvejru, endilega nefna það í commentum…. þar að auki getur vel verið að aðrir þekki aðrar reglur

Indverskur skítakall

Það getur vel verið að þessar reglur séu þekktar annar staðar og margir þekkja þetta kannski, en flestir í Indlandi virðast þekkja “shithead” eftir þessum “viðbótarreglum”

  • Til að byrja með þá eru fleiri spil sem virka öðruvísi
    • 2 gildir allt
    • 3 gildir það sama og spilið sem var sett niður á undan, td. ef einhver setur ás út og maður setur 3 ofan á, þá gildir 3 sem ás.
    • 4 er þá orðið lægsta spilið
    • 7 þýðir núna “lægra en 7″ – þeas. ef maður setur 7 út, þá verður sá næsti sem á að gera (og bara sá næsti) að setja spil sem er lægra en 7, td. 4, 5, 6 eða aðra 7, en þá þarf sá næsti að gera lægra en 7. Ath að maður má setja
    • 8 er stopp-spil. Þeas. ef maður setur áttu út, þá má sá sem á að gera næst, ekki gera í eitt skipti. Ef maður setur tvær áttur út, þá hoppar það yfir tvo spilara. Þannig að ef þrír eru að spila og maður setur tvær áttur út, þá á maður sjálfur aftur að gera.
    • 10 sprengir bunkan eins og áður
    • Ás er bestur eins og áður
  • Maður má ennþá lauma spilum inn, en eingöngu ef maður á nógu mörg þannig að þau verði 4 og sprengi bunkan – og þá er líka komið að manni að gera. Þannig að þú getur “stolið senunni”
  • Ef maður á ekkert spil sem er nógu hátt (eða lægra en 7 þegar 7 er í borðinu) þá þarf maður eins og vanalega að taka bunkan, NEMA: að þú setur ekki sjálfur spil út, heldur á sá sem á næst að gera að sjá um það.
  • Sá sem sprengir bunkan á samt sem áður að setja spil næst út.
  • ATH: Í Indverskum skítakall, ef maður á fleiri en eitt af einhverju spili, þá ræðuru hvort þú setur öll út strax eða eitt eða bara tvö. Þeas. ræður alveg hvernig þú notar þau. Þar að auki þarftu ekki alltaf að setja lægsta spilið þitt út – ef þú sérð strategískan hag í að setja ásinn þinn strax út, þá er það bara hið besta mál.
  • Áhætta er ekki memm.

Ég hvet alla til að prófa þetta, leikurinn verður aðeins meira interesting og það eru fleiri möguleikar á mismunandi strategíu…

Posted in Uncategorized | Tagged , , , , | Leave a comment

Mysore

Mysore (2)

Það var fólk búið að segja okkur að Mysore væri skemmtilegri staður til að stoppa en Bangalore, svo við ákváðum að koma þar við á leiðinni til Kerala.

Það var alveg fínt að vera í nokkra daga í Mysore, eins og það átti að vera.. En síðan festumst við! Það byrjaði á því að Helga varð veik, fékk magapínu og hita. Hún slappaði því af í 2 daga og við lengdum hótelgistinguna… Svo varð Addi veikur!! Við ætluðum ekki að nenna að vera þarna lengur, svo við fengum lækni á staðinn – hann kom með pillur og allt batnaði á 2-3 dögum.

Síðan vorum við búin að tékka okkur af hótelinu, stefndum á rútustöðina, fundum rútuna.. en neibbs… ALLAR RÚTUR FULLAR. Örugglega eini dagurinn á árinu út af Dasara eða Diwali hátíðinni… Enn einn dagurinn í Mysore.. Við trúðum þessu ekki… Í þetta skiptið tékkuðum við okkur inn á eitthvað ódýrt (og ógeðslegt) hótel og þraukuðum einn dag í viðbót… Og svo erum við loksins SLOPPIN :D

Svona fyrir utan þetta var fínt í Mysore. Þar er svaka stór og flott höll, glæsilegur dýragarður og margt fleira.

Við hittum indverskan náunga í gegnum couchsurfing.org sem heitir Amit. Hann er yoga kennari og stundar líka “reiki” heilun. Við borðuðum með honum og 3 dönsurum frá New York, Perry bónda frá USA, Ann Marie frá Noreg og einhverri stelpu frá Hollandi eitt kvöldið. Það var skemmtileg tilbreyting að borða með og spjalla við fleira fólk.

Síðan elduðum við líka indverskan heimilismat eitt kvöldið, heima hjá Amit. Hann er með svona frekar lítið eldhús en við náðum samt að nota það til að flambera fína máltíð. Addi tók reyndar ekki mikinn þátt í því, Helga sá um þetta.

Mysore

Þetta er svo geðveikt, ef við gætum nú bara munað þessa fjóra punkta þá væri lífið betra :)

Mysore (1)

Muuuuu út í garði

Mysore (3)

Fyrir utan Mysore Palace

Mysore (4)

“Viltu slást?”

Mysore (5)

“Láttu kallinn minn í friði, kisa”

Mysore (6)

Matur með mörgum

Mysore (7)

Perry og Amit

Mysore (8)

Kakkalakki … jafn langur og langatöng

Mysore (9)

Addi fékk lakkrís í afmælisgjöf!!!

Mysore (10)

Graffití

Mysore (11)

Síminn auðvitað festur á tré

Mysore (12)

Hún sér eitthvað, enginn veit hvað

Mysore (13)

Les á meðan Helga og Amit búa til Indverskan heimilsmat, það var grenjandi rigning og húsið rafmagnslaust, þessvegna eru kerti og flassmyndir :)

Mysore (14)

Helga í Indverska eldhúsinu að elda á gólfinu – það er eins og hún hafi aldrei gert neitt annað….

Mysore (16)

Þetta er svo útkoman

Mysore (17)

Og svo borðuðum við.. Þetta var bara nokkuð gott

Mysore (18)

Fyrir utan hótelið okkar, “Hotel Airlines” (það er samt ekki nálægt flugvelli og tengist engu flugfélagi á neinn hátt)

Mysore (19)

Snyrtilegasta götuhornið í Mysore

Mysore (20)

Þetta er örugglega leiðinlegasta starf í heimi, umferðalögga! Kaótísk umferð, bílaflaut og mengun.

Mysore (21)

Addi orðin veikur! Þegar hann fer undir teppi í 30 stiga hita er ekki allt með felldu ;/

Mysore (22)

Þarna vorum við að komast að því að allar rútur eru fullur – við verðum áfram í Mysore

Mysore (15)

Hey… það geta ekki allar pósur heppnast fullkomlega…

Posted in Uncategorized | Tagged , , , , , | Leave a comment

Bangalore

Bangalore bangalore bangalore. Loksins eitthvað sem líktist siðmenningu. Eftir að hafa verið í strábýlum hverfum, með takmarkað rafmagn nema á vissum tímum og mis-góðan mat var algjör draumur að koma í hina vestrænu Bangalore.

Þeir segja hana vera Silicon Valley Indlands, heimili stærstu tölvufyrirtækja Indlands ofl. Hér eru frægustu skólarnir einnig og borgarbúar tala almennt frábæra ensku….

bangalore (10)

Í “The Botanic Garden”

bangalore (15)

Þetta er umferð

bangalore

Glaður að finna kaffihús með kaffi

bangalore (1)

Fyrsti espresso bollinn í nokkrar vikur… ú je

Hér gátum við fengið okkur símanúmer, internet og allar græjur. No questions asked.. svona fyrir utan vegabréfsafrit, nýja ljósmynd og staðfestingu frá hótelinu um að við værum á því.

Við nutum þess að fara á KFC, McDonald’s, ráfa um strætin þar sem borgarbúar ýmist browsuðu á feisbook í símanum sínum eða sötruðu latte yfir skólabókunum.

bangalore (16)

Til gamans: Sum af þeim fjölmörgu tólum og tækjum sem notuð hafa verið í baráttunni við moskítóflugur

bangalore (13)

Þeir eru gjarnan með heimspekina svona hér og þar til sýnis

bangalore (14)

Sækja þvottinn okkar í hreinsum. Band Box virðist vera sæmilega góð fatahreinsunarkeðja í Bangalore. Addi að lesa spekina.

bangalore (9)

Á ísl: Gerið svo vel að losa ekki þvag hérna, það er annars migið allsstaðar þar sem ekki er hús, við svona veggi og svoleiðis ;/

bangalore (8)

Nammi nammi namm

bangalore (7)

Það eru líka beljur í stóru borgunum

bangalore (6)

Borða doughnut

bangalore (5)

Óvenjuleg pósa á venjulegri gangstétt hjá venjulegri götu

bangalore (4)

Helga pantaði sér Masala Dosa með roomservice

bangalore (2)

Að tala í símann við Ísland, smekklegar nærbuxur sem einhver er að þurrka á handriðinu.

Við fórum líka á geðveikt góðan veitingastað þar sem Addi fékk besta green peas masala sem hann hefur smakkað.

Við kíktum einn daginn í Bangalore Botanic Garden. Þar var samt ekkert að sjá nema blóm og tré (ok, dálítið augljóst að Addi hafi skrifað þessa blog færslu)

bangalore (12)

Einkennilega langt en mjótt tré

bangalore blom

Mynd af flauelsblómum fyrir mömmu :)

bangalore (11)

Helga að borða ferskan ananas

Posted in Uncategorized | Tagged , , , , | Leave a comment