Mountain View, California…

 

Við ætlum sem sagt að endurvekja gamla bloggið sem hefur reyndar verið opið en óvirkt síðan við vorum á Indlandi. Þetta verður nú ekki beint ferðablog lengur en við erum samt nokkurnveginn á ferðinni og langt frá Íslandi svo þetta sleppur.

Við erum allaveganna komin út og búin að vera í tvær vikur í Silicon Valley ííhaaa!
Það er svo sem ekki mikð búið að gerast hérna síðan við yfirgáfum landið kalda. Við erum reyndar búin að fara til SF (San Francisco) um hverja helgi :D alveg glatað af því þá eyðum við alltaf of miklum pening. Við ætluðum sko ekki að fara núna um helgina en svo var vinnan hans Adda að fara á Taco crawl í Mission svo við skelltum okkur auðvitað með. Mission hverfið í SF er sem sagt hipsterahverfið þar sem ekkert er flott og fínt bara alvöru og töööff. Þar eru bestu mexicosku skyndibitastaðirnir svo við röltum á milli þeirra og fengum okkur eina taco á hverjum stað. Taco er sem sagt ekki eins stór og burrito….bara svona eins og undirskál, svo setja þeir kjöt, salsasósu, hráan lauk og kóríander…GEÐVEIKT GOTT.

Þessi fyrsta blogfærsla er samt bara svona nokkrar myndir af okkur, hverfinu okkar og smá af SF.

Bílaverkstæðið á móti húsinu okkar…ekki mjög sjarmerandi nágrannar en það er allaveganna aldrei vesen á þeim.

Næsta gata, hverfið heitir víst old Mountain View, veit ekki meira um þá staðhæfingu en það eru allaveganna stór og gömul tré hérna inn á milli þó svo húsin séu frekar venjuleg.

Garðurinn hjá einum grannanum…frekar skrítið!

Einn með metnað.

Einn súper venjulegur!

Svo er verið að byggja hús úr spónaplötum í hverfinu okkar…vel gert herra smiður, þetta á eftir að standa af sér alla jarðskjálfta!!

Vonarstræti og Kirkjustræti :D

Helga: OK, svo tók ég nokkrar myndir þegar ég hjólaði til Adda í vinnuna. Það eru næstum því 9 km þangað svo JÁ ég er mjög dugleg að hjóla. Fór meira að segja tvisvar í síðustu viku, ha, það gera 36 km!!! En já þetta er á jafnsléttu í logni svo það er gerlegt :)
Ég hafði myndirnar aðeins minni svo þessi blogfærsla verði ekki 36 km löng.

Þetta er Castro Street, down Town Mountain View. Hér eru aðallega kaffihús, veitingastaðir og einhverjar búðir. Frekar kósí og rólegt…hún er samt ekki alltaf svona tóm.

Krúttlegt hús á leiðinni…það var svo kósí og kúrði undir tré.

California Avenue…stóra gatan sem ég hjóla næstum helminginn af leiðinni. Er með hjóla akrein þarna svo það er ágætt!

Fjölbýlishús með leiguíbúðum, fullt af svoleiðis og mjög misjafn standard. Þetta er örugglega svona frekar ódýrt giska ég.

Já þetta er líka við California Avenue…veit ekki hvað þessi er að pæla!

Göngubrúin og stýrið á nýja hjólinu mínu.

Þetta er vinnan hans Adda og hjólið mitt góða. Kannski fáið þið að sjá betri myndir af hjólinu mínu seinna, ég veit að allir bíða spenntir vúpppí!

Fórum í einhverja bókabúð með notaðar bækur þegar við fórum að fá okkur að borða. Ljótasta bókabúð í heimi :O

Jæja…nokkrar myndir frá SF. Við tókum Zipcar í einn dag, fórum í Wholefoods, Wallmart og nokkrar búðir í San Francisco. Kíktum líka aðeins á ströndina sem var frekar köld en mjög falleg. Allaveganna hér eru nokkrar myndir , stundum tók Helga bara út um gluggann á bílnum. Það er svo sem ekki mikið að segja frá þessari ferð…það er líka svo leiðinlegt eitthvað að skrifa svona aftur í tímann.

Ok…Addi keypti sér upphífingarstöng í Wallmart sem heitir “Perfect MULTI GYM”. Ekki beint fjölbreytt, upphífingar, armbeygjur og magaæfingar :D

Mjög furðuleg blanda, hvalir og stripparar í sama húsinu???

Gömul og flott hús á besta stað í SF, með útsýni yfir brúna!

Jæja, við tókum engar myndir núna um helgina en þetta er líka komið gott í bili. Nú vitið þið nokkurn veginn hvernig þetta lítur út allt saman. Svo verða smáviðburðir og annað daglegt líf myndað og sett hérna annað slagið eða eftir pöntunum.

lifið heil

This entry was posted in California 2012. Bookmark the permalink.

5 Responses to Mountain View, California…

  1. Eyrún says:

    Gaman að sjá myndir!

    Ég er samt forvitin um þetta spónaplötuhús! Þú verður að tjekka betur á þessu :D

    Annars finnst mér mættu vera fleiri myndir af sögumanninum!

  2. Jeij! Blogg aftur!

    Nú langar mig að koma í heimsókn :)

    Vona að þið hafið það kósí, við jónas sendum kveðjur úr bongóblíðunni á Íslandi

  3. María says:

    Jei, gaman að sjá myndir! Þetta lítur vel út :)

  4. Hörn says:

    Vei, vei komnar myndir OG fréttir :-)
    P.s. Ég ♥ Walmart…

  5. Mamma says:

    Flott þetta Helga en það væri gaman að sjá húsið sem þið búið í og kannski myndir úr íbúðinni og þá sér í lagi úr herberginu mínu hehehe,

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>