Ferðin að lokum komin!!

Þá kveðjum við þessa ótrúlegu ævintýraferð okkar. Ég (Helga) er löngu farin heim og Addi kvaddi Indland í gær.

Það er alveg ótrúlegt hvað þetta stóra, fjölmenna land er yndislegt og hörmulegt á sama tíma. Það er ekki hægt að lýsa í svona litlu bloggi öllum þeim tilfinningum og hugsunum sem fljúga í gegnum hugann. Helstu hörmungarnar eru fátæktin og lítið virði manneskjunnar en þetta er ekki hægt að mynda og ekkert skemmtilegt að mynda. Hér höfum við aðallega verið að setja inn skemmtilegar myndir, bæði fyrir ykkur til yndisauka og fyrir okkur til þess að halda smá dagbók. Við höfum haft mjög gaman að þessu  og geggjað að fá svona frábær viðbrögð allra sem lesa.

Takk fyrir okkur og sjáumst í næsta ferðabloggi….dadadara hvar verðum við þá??

This entry was posted in Indland, sept 2009 - feb 2010, Uncategorized. Bookmark the permalink.

One Response to Ferðin að lokum komin!!

  1. erla maria says:

    takk fyrir rosaskemmtilegt blogg, krakkar :D
    ekkert smá gaman að fylgjast með þessu svona online og svo að fá ferðasögurnar beint í æð frá adda núna.
    hlakka til að hitta þig næst, helga, þú verður bara að kíkja hingað til okkar í brighton í stelpuferð bráðlega :)

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>