Athyglisverður aðfangadagur

Við héldum gleðilegan aðfangadag á Goan Corner.

Það var setið hring í kring um varðeld. Það var rosa fínt hlaðborð að indverskum sið, en samt með svínakjöti, sem var sérstaklega velkomin viðbót við matarflóruna.

Síðan var secret-santa leikur þar sem allir fengu að gefa einhverjum gjöf, en enginn vissi hver gaf gjöfina. Ég man ekki hvað Helga fékk, ég fékk kókosolíu sem var alveg að renna út og svo fengum ég og Petter rauðar og fjólubláar þröngar teygjubuxur, svona eins og klifrað var í á áttunda áratugnum… frá Helgu og Ceciliu, einhver svaka húmor í gangi. Það sem þær bjuggust samt líklega ekki við er hvað við erum búnir að nota þær mikið.

Svo enduðu herlegheitin auðvitað á brjáluðu fylleríi og þá var meðal annars farið í Crash-pad stacking leik. Sem útleggst líklega sem: Dettidýnustöflunarleikur á íslensku…

Myndirnar frá jólunum eru frekar dökkar og erfiðar, það verður að hafa það. Síðan fylgja með ýmsar klifurmyndir.

Sopið á jólasúpu, Pála, Eskild, Conrad, Chico, Jimbo, Jennifer, Ben, Vincent

Verið að baka kartöflur

Jólahlaðborðið, Thakkur pósar

Katarin, Wulfgang, Andrew, ekkiviss og Duncan

Cecilia, Oscar og manekki sorry

Jólasveinninn í ár: Flöskuþembill

Einhver heppinn fær gjöf

Vincent var verulega ánægður með sína gjöf

Við gáfum starfsfólkinu nýja krikket kylfu, því þeirra hafði brotnað nokkrum vikum áður.

Cool, lol

Og í dettidýnustöflunarleik

Kaare og Andrew stóðu sig lang best að mínu mati

Hvolpar komu í heiminn

Flugvélin, ég varð að lauma einni mynd af henni þarna inn

Jakob í flugvélinni

Hetjuliðið þruman að pósa upp á klett

Tomi Lindroos

Manni hlýtur að líða örugglega með tvo menn í hetjubúning að spotta mann

Ég að reyna að klifra Crystal Ball

Ég að reyna meira að klifra Crystal Ball… ég hef enn ekki klárað það

This entry was posted in Indland, sept 2009 - feb 2010, Uncategorized and tagged , , , , , . Bookmark the permalink.

One Response to Athyglisverður aðfangadagur

  1. Momsý says:

    Athyglisverður aðfangadagur, ekki beint hefðbundinn hehehe.
    Glæsilegir eru þið í “nýju” fínu buxunum ykkar. Svo eru þið báðir í þessum fínu bolum/skyrtum sem passa svona ljómandi vel við þær hehehe.

    Elska þig í ræmur…
    Momsý

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>