Hampi, aftur

Við erum komin heim….heim til Hampi það er segja. Þvílík kyrrð fæst hvergi nema í Hampi og garðinum í Reykjabyggð 10 :)

Við höfum klifrað aðeins og svo haft það gott með góðu fólki hér á gistiheimilinu. Við fengum aftur herbergi á Goan Corner. Sharmilla og Thakor, maðurinn hennar, reka það með Amit, sex ára gutta í spidermanbol og með skínandi plast-riffil. Strákar eru allsstaðar eins :)

Addi og Mattias spila skák og drekka ógeðisdrykki

Klukkan er 7 um morgun…ennþá svalt og já, Addi getur vaknað snemma er hann langar til þess!

Farið að hitna í kolunum…

Fyrsta klifursárið hennar Helgu, hún var mjög stolt! (enginn verður óbarinn biskup og allt það)

Þessar kellur koma annnan hvern dag og selja ávexti og hafa gert það í 12 ár. Fyrst kaupir Sharmila fyrir veitingastaðinn og svo megum við spreyta okkur. Þær eru æði þegar þær koma innkeyrsluna allar með körfuna sínar á hausnum :)

Hjónin á Goan Corner að búa til Nutella-doghnuts…keinuhringjadeig fyllt með súkkulaðismjöri og svo djúpsteikt. Nammi gott…Sharmilla bakar eina tegund af eftirrétt (sykurgúmmulaði) á hverju kvöldi  :)

Myntu te…Helgu fannst það bara svo fallegt!

Prinsinn af Goan Corner!

Þetta er kökumaðurinn (cakeman)…hann röltir um klettana og selur klifrurum kökur :) Við höfum ekki enn keypt, við höfum ekki list á kökum klukkan átta á morgnana.

Þetta er svona skrítinn Indverskur maður sem að lifir í Asram (gistiheimili eða lítið samfélag þar sem allir fylgja sama gúrúinum), maðurinn á myndinni stundar jóga og hugleiðir, ferðast um með enga peninga og lifir á peningagjöfum. Hann gaf okkur öllum rautt og svart fræ (til heilla)  og í staðinn fékk hann 10 rúbís (30 krónur).

Við fórum til Hampi town á föstudaginn með Tomi frá Finnlandi. Það var einhver hátíð, verið að fagna því þegar Rama og Shita (guðir) giftu sig. Við héldum að það ætti að taka vagninn út og draga hann eftir aðalgötunni (á vagninum er um 7 metra há stytta af Rama sem er skreytt með blómum og drasli). Það var ekki málið en okkur var sagt að á þessari hátíð kemur fólk frá nágrannabæjunum og hanga í Hampi. Klæða sig upp fara í hofin, biðja og svo hanga og tjilla fram á nótt..bara þetta sem við gerum á jólum og páskum…borða og tjilla saman og háma í sig nammi :)

Helga við nammibarinn…ekki svo gott nammi :/

Mannfjöldinn að fara í hofið eða musterið eða hvað sem þetta kallast á ísl :)

Þetta er svona duft til þess að skreyta sig í framan, rauða doppan og fleira skemmtilegt.

Perlufestar og fleira til sölu

Þessi kunni ekki ensku svo við vissum aldrei hvað var hægt að hlusta á!

Addi og Tomi að rölta, báðir mjög röltlegir!

sdfgsfd gsdfgs dfsdf

Þessi feita geit fékk græn horn fyrir hátíðina

nei þetta er sko ekki stelpu-mótorhjól!

Strákurinn stóð upp og ætlaði að færa sig þegar Addi tók myndina og var ekkert smá ánægður þegar Addi bað hann að setjast aftur. Olíulampar til sölu.

Jólagjöfin í ár!

[youtube=http://www.youtube.com/watch?v=0ug9cbKHT_I]

This entry was posted in Indland, sept 2009 - feb 2010, Uncategorized and tagged , , , , , , , . Bookmark the permalink.

2 Responses to Hampi, aftur

  1. Helga P says:

    Alltaf jafn gaman að sjá myndir hjá ykkur og lesa hvað þið eruð að gera.
    Eruð þið búin að panta far heim til íslands?
    Knús

  2. utiovissuna says:

    Takk :) Neibbs, við erum ekki búin að panta… erum að reyna, eitthvað vesen…

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>