Pondicherry, Ponducherry, Puducherry, Pondichery, Pondicheri, Pundicherry – svo margar mögulegar stafsetningar, svo fáar götur.
Pondicherry er rómantísk hálf-frönsk nýlenda í norðurhluta Tamil Nadu. Við eyddum 2 nóttum hérna og það var alveg passlegt. Við vorum búin að heyra marga góða hluti og einhverja ekki eins góða hluti um bæinn.
Við höfðum heyrt frá öðrum ferðalöngum að fólk í Ponducherry væri frekar dónalegt og gistingin dýr. Við ákváðum að taka splæsið því við fundum hvergi laust herbergi sem var ekki grút-skítugt og eyddum miklum pening í að vera á “Colonial Heritage” í franska hlutanum. Gullfallegt gistiheimili með fallegum aflokuðum garði. Það var bara ein nótt laus svo næstu nótt splæstum við í dýrasta herbergið á gistiheimilinu. Stórt herbergi, risa rúm, einkasvalir með borði, geðveikt góð loftkæling og bara frábært herbergi. Þið sjáið mjög góða og ýtarlega kynningu í videoinu neðst á síðunni. Okkur fannst þetta alveg rosalega dýrt, fína herbergið var til dæmis meira en tíu sinnum dýrara en gistiheimilið í Hampi. Það kostaði rúmlega 7000 krónur, í samhengi við Ísland er þetta bara venjulegt verð á gistiheimili.
Við röltum aðeins um bæinn og sáum hitt og þetta. Aðallega kirkju, veitingastaði og eitthvað slíkt.
Ef maður vill upplifa eitthvað skemmtilegt í Pondicherry, þá er líklega besta bettið að fara og búa í einhvern tíma í hippanýlendunni Auroville. Það er mjög merkileg saga bakvið Auroville sem ég ætla ekki að fara út í hér, lesið Wikipedia ef þið viljið. Við nenntum samt ekki að fara þangað.
Það kom rigning og niðurfallið var greinilega eitthvað stíflað þarna…Addi var að fíla þetta en Helga neitaði að vaða, fékk far á bakinu á Adda sínum
Helga og perlurnar
Þarna geyma þau líkin, garðurinn á gistiheimilinu!
Fiskmarkaðurinn – sjá video neðar í blogfærslunni
Helga var greinilega mikið duglegri en ég að taka myndir í Pondicherry, því Addi (og Tom) er á öllum myndum.
Kaþólsk kirkja…rosa fín, það var sunnudagur og mikið af fólki!
Það var óvenju mikið af ruslahaugum á götuhornum í Ponducherry…Helga vildi mynda herlegheitin.
Hleðslutæki, fjarstýringar, rafmagnssnúrur, straumbreytar, playstation fjarstýringar, reiknivélar, framlengingarsnúrur og alskonar gamalt drasl.
Sumar göturnar voru ótrúlega fallegar og Franskar.
skemmtileg hugmynd
[youtube=http://www.youtube.com/watch?v=rFxcL5w5Tik]
Fiskmarkaðurinn
[youtube=http://www.youtube.com/watch?v=gu45trDm4kc]
Það var mjög erfitt að finna gistingu í Pondicherry – það var allt uppbókað eða rosalega skítugt. En allar gistingarnar áttu það sameiginlegt að vera rándýrar. Við létum okkur hafa það og fórum í þetta frekar dýra (2000 INR nóttin) gistiheimili. En það var reyndar var bara laust eina nótt.
[youtube=http://www.youtube.com/watch?v=J7vUYdlWhvo]
Seinni nóttina (meikuðum ekki fleiri en 2 nætur í PC) fórum við í, líklega, dýrasta herbergið í gistiheimilinu. Stórt herbergi með loftkælingu, einkasvölum og bara rosa næs. Það var ennþá dýrara – keppni: Giskið á verðið á seinna herberginu og þið fáið verðlaun! Og þau eru ekki af verri endanum.









9.000 segir pabbi, ég segi 10.000 ? það mætti halda að þið væruð íslenskur aðall, hvað er gangi ?? gott samt að þið voruð með fílustað
elska þetta herbergi samt…þið ættuð að hafa fullt af góðum hugmyndum fyrir íbúðina ykkar þegar þið komið heim !! knús
Ég var að sjá að helga skrifaði hvað það kostaði þarna ofar í færslunni, svo verðlaunin fara fyrir lítið
Eða jú, þið fáið bæði verðlaun, gjörið svo vel:
http://bit.ly/6SA2Lm
Sko aldeilis flott hjá ykkur. Mér sýnist farangurinn vera að aukast eitthvað hjá ykkur, töskum að fjölga
Er Helga að versla hehehe
Helga, sagði Addi þér draumráðningu mína varðandi hundinn/tígrisdýrið?
Knús og kossar frá Momsý?
p.s. eru þið búin að bóka far til Tælands og heim?
rosafínt hótelið
er farin að hlakka til að heyra alla ferðasögurnar, hefði verið tryllt að fá ykkur í heimsókn til brighton
Ég ætla að giska á 3-4000 Ísl.krónur fyrir herbergið. Helga, þú ættir eiginlega að byrja með svona ferðaþátt, þú tekur þig svo vel út í sjónvarpinu
já takk…ég skal vera með ferðaþátt
Hver vill borga mér fyrir að ferðast? kanski RÚV…
Klárlega vel hæf saman til að sjá um Innlit/Útlit þegar þið komið heim.
Sérstaklega gott auga fyrir fýlustöðum… hefur það ehv með Arnór að gera eða
Já, loksins sér einhver okkar gífurlegu hæfileika í réttu ljósi
takk fyrir gjöfina Addi…mér hefur einmitt alltaf langað að sjá hamborgara á trampolíni !
…útsaumaði pakkin ykkar er kominn, lítur út fyrir að hafa lifað ferðina af en tollurinn hleypti pöddunum út einhversstaðar
Úúú, góðar fréttir, Dísa. Við höfðum áhyggjur af því að hann mundi ekki koma í tæka tíð.
Þetta er æðislegt herbergi og alveg peninganna virði sýnist mér