Kanyakumari, Tamil Nadu

Það var fallegt á leiðinni. Við vorum spennt að komast suður!

Úff, hvílíkur staður. Mikil fátækt, allt extra skítugt, ekkert að gera. Öll hótelherbergin hérna voru dýr og skítug – semsagt, ekki gerð fyrir vesturlandabúa. Þetta er fyrsta reynsla okkar af Tamil Nadu og fyrsti þefurinn er ekki góður.

Addi er að stikna út hita…

Kanyakumari er syðsti punkturinn á Indlandi og merkilegur fyrir það að þarna mætast þrjú höf: Arabíska hafið, Bengalflói og Indlandshafið. Okkur fannst það flott og hugsuðum að það mundi líta vel út á kortinu að koma hingað.

Smá vonbrigði!
Þetta er samt örugglega fínn staður, en við vorum bara orðin svo góðu vön í Varkala.

Við komum til Kanyakumari um kvöldmatarleytið og eyddum 2 tímum í að leita að hótelherbergi. við skoðuðum örugglega 15 hótel og á endanum völdum við eitt frekar dýrt (samt ekkert fansí, bara þokkalega hreint) og tókum ódýrasta herbergið í kjallaranum…svona er þetta bara stundum!

Þetta er frekar fína hótelið okkar…

Gangurinn okkar er líka geymsla…alskonar gamalt drasl þarna. Þetta herbergi var tvöfalt dýrara en litla sæta kotið okkar í Varkala :)

Það var verið að mála hótelið og eins og annars staðar á Indlandi er hér ekki neitt sem heitir öryggis eitthvað….hahaha, svo flippaðir!

Þrátt fyrir þetta létum við okkur hafa það að fara í smá sight-seeing. Við sáum minnisvarða um Mahatma Ghandi og fórum síðan í smá báta-skoðunarferð um höfin þrjú (örugglega) og sáum þar minnisvarða sem var reist á litlu skeri til minningar um mann. Þetta var einhver frægur andlegur maður sem eyddi nokkrum dögum á þessu skeri að hugleiða (rétt fyrir 1900). Í bátsferðinni  sáumvið líka risastór stytta af einhverjum manni. Því miður voru upplýsingarnar í þessari ferð allar á Hindi eða Tamil og svo eitt og eitt brot á ensku, þannig að höfum ekki alveg allar upplýsingarnar á hreinu. Þið getið lesið ykkur til á Wikitravel eða Wikipedia og kannski frætt okkur eitthvað! :)

Þetta er aðal ferðamanna-aðdráttaraflið og auðvitað höfin þrjú!

Þvílík biðröð í dallinn.

Það voru semsagt bara Indverjar í bátnum…hehe, alltaf eitthvað smá vandræðanlegt við að vera eina hvíta fólkið :)

Hann er smart þessu með bumbuna…svart pils og viskustykki yfir axlirnar

Addi var að pissa á sig af spenningi…hahaha (hann er að feika það)

Það er svo töff að þeir mála oft á veggina í staðin fyrir að setja upp skilti

Addi og lítill gaur að fyrir utan bókabúðina, Hann keypti sér tvær hugleiðslubækur…Paths of meditation og Meditation, it’s progress, practice and culmination!

Minnisvarðinn, sem er í rauninni hús og ínn í húsinu er stytta af þessum manni en það var bannað að taka myndir inni!

Addi að halda kúlinu :)

Útsýnið var mjög gott en hvað kom fyrir hárið á Helgu?

Næsta stopp var stóra styttan…við náðum því aldrei hver þetta var :) skiptir ekki öllu máli! (ekki er hárið neitt betra þarna)

Við löbbuðum upp stiga til þess að komast upp á pallinn til styttunnar og sjá útsýið. Við máttum alls ekki hrækja á leiðinni!

Addi stóðst ekki mátið…

Við, hafið og himininn!

Við tókum mjög margar myndir í þessum bæ….hmmm, samt fannst okkur hann ekkert svo merkilegur. Þetta tvennt helst greinilega ekki í hendur :)
Það gæti verið að þegar okkur leiðist einhverstaðar (þráðlausa netið okkar var hætt að virka) notum við tímann í að rölta og taka myndir og þegar við höfum það of gott, þá sitjum við í tölvunni eða á kaffhúsi og tökum engar myndir…..interesting!

Einn af miljón minnisvörðum um Mahatma Gandhi :)

Ég er farin að greiða mér!

Melodious musical centre…virtist vera í notkun, allaveganna voru nýjleg plagöt við innganginn.

Smábátahöfnin, Nauthólsvík og ruslahaugur í einum pakka…hentugt!

Mjög vinarlegur karl afgreiddi okkur…Helga fékk að taka mynd af búðinni hans, hún ætlaði að reyna að ná mynd af risastóru hárbrúskunum sem stóðu út um eyrun en það tókst ekki :) samt krúttleg mynd!

Fórum eiginlega alltaf á þennan veitingastað…ekkert merkilegt við hann, bara þægilegt að þurfa ekki að ákveða hvar við ættum að borða. Við söknum þess að geta opnað ískápinn og fengið okkur brauð með gúrku.

[youtube=http://www.youtube.com/watch?v=CPN2YbnqkCg]

Sjórinn er ruslakarfa

This entry was posted in Indland, sept 2009 - feb 2010, Uncategorized and tagged , , , , , , , . Bookmark the permalink.

4 Responses to Kanyakumari, Tamil Nadu

  1. Momsý says:

    Hæ elskurnar mínar.
    Ég sakna þess líka að þið getið ekki opnað ísskápinn og fengið ykkur brauð með gúrku :)
    Það verður gott að fá ykkur heim og ég myndi fara að telja dagana þangað til ef ég vissi hvenær það verður.
    Haldiði áfram að njóta ykkar en passið ykkur á ferjuslysunum :) Indverjar eru frægir fyrir að ofhlaða þær, svo það er um að gera og sitja með björgunarvestið í fanginu eins og ég sá að einn gerði á myndinn af manninum með bumbuna :)
    Flottar buxur Addi minn
    Elska ykkur í tætlur
    knús og kossar frá Momsý

  2. Momsý says:

    Já, heyrðu, ég sá á annarrri mynd að Helga er með vestið í fanginu – sjúkk itt :D

  3. erla maria says:

    hvernig væri að vörka tanið þarna í hitanum, þá hættið þið kannski að vera eina hvíta fólkið í bátunum :D

    og mér finnst hárið á helgu bara fínt.

    þið eruð stórglæsileg eins og alltaf, hlakka til að knúsa glæsileikann á bakaleiðinni ykkar

  4. Sirrý says:

    Alltaf spennandi að lesa bloggið ykkar. Raðamenningin ótrúlega skemmtileg og svo ruslahaugasjórinn! Bestu kveðjur úr dalnum. Hér er akkúrat þessa stundina verið að horfa á Dóru í sjónvarpinu á laugardagsmorgni. Snjór úti og frekar kalt. Sirrý

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>