Við fórum í dýragarðinn í Mysore. Hann er talinn einn sá besti á Indlandi og þar virðist oftast vera nóg pláss fyrir öll dýrin og maður fær það alls ekki á tilfinninguna að þeim líði eins illa og dýrunum í dýragarðinum í Barcelona (sem var frekar sorglegur)
Við náðum ekki góðum myndum af öllum dýrunum, td. öpum, górillum, björnum ofl… svo þessar myndir verða að nægja
Svo tókum við fullt af videoum, en þau voru öll á hreyfingu og ekkert sást á þeim og það var bara eitt sem virkaði… af skjaldböku
[youtube=http://www.youtube.com/watch?v=TKc0PlB9LCk]
Það eru reyndar mörg betri video af þessum dýragarði sem við eigum ekki heiðurinn af… ef einhver hefur áhuga á því, þá eru nokkur þeirra hérna:
Skógarbjörn:
[youtube=http://www.youtube.com/watch?v=tj95Jsv4748&NR=1]
Tígrisdýr:
[youtube=http://www.youtube.com/watch?v=YA62MNA48B4&feature=related]
Smá fræðsluyoutubeklippa (ég horfði ekki á hana, en hún er með fíla!)
[youtube=http://www.youtube.com/watch?v=YU_fa9-V2xQ&feature=related]
















úú Loove !! flottur fíll …og allir hinir félagarnir ! hefði verið til í að vera þarna !!