Skítakall og indverskur skítakall

Þessi færsla tengist ferðinni okkar eiginlega ekki neitt, heldur bara smá  upplýsingar um hvernig indverskur skítakall gengur fyrir sig. Það hafa margir komið til okkar og grát beðið okkur að kenna sér þennan bráðskemmtilega leik og þar sem það er svolítið erfitt gegnum feisbook eða skype, þá ákváðum við (eða bara Addi) að skrifa reglurnar hérna.

Það þekkja eflaust margir spilaleikinn “skítakall” eða stundum kallaður “þrjár litlar mýs”. Markmið spilsins er dálítið eins og í olsen, losna við öll spilin. Í grófum dráttum eru reglurnar í honum eitthvað á þessa leið (þetta endaði ýtarlegra en ég hugsaði fyrst):

  • Byrjun spilsins
    • Allir fá 3 spil á hvolfi í borð, 3 spil snúa rétt ofan á þau spil (semsagt 6 spil á mann)
    • Allir fá 3 spil á hendi – semsagt, samtals 9 spil á mann með spilunum sem eru í borði
    • (maður má skipta bestu spilunum sínum á hendi út fyrir efri spilin í borði)
    • Afgangurinn af stokknum er settur á mitt borðið
    • Sá sem er með lægsta spilið leggur það út við hliðina á stokknum (3 er lægstur, svo 4, svo 5)
  • Markmið spilsins er að losna við öll spilin af hendi og úr borði (en maður má ekki snerta spilin í borðinu fyrr en í lok spilsins).
  • Síðan gengur spilið í klukkna hring og allir setja, koll af kolli, lægsta spilið sitt sem er samt hærra en spilið sem var sett á undan. Ef Jói setur 6, þá getur Gunni sett 7,8,9,osfrv… Og ef Gunni setur 9, þá setur Hanna td. gosa…
  • Þegar spilari hefur sett út spil, þá dregur hann nýtt úr stokknum.
  • Maður má setja 2-4 eins spil niður (td, 2 fjarkar)
  • Ef spilari á ekkert sem er hærra en spilið sem er niðri, þá þarf hann að taka allan bunkan og setja lægsta spilið sitt niður
  • Gildi spilana
    • Hærra spil er betra, en ás er hæstur – en nokkur spil hafa ákveðna töfra eiginleika:
    • 2 gildir allt
    • 10 gildir allt og “sprengir” bunkan – þeas. ef maður setur 10 út (og þú getur sett 10 á allt), þá tekur maður allt sem var í bunkanum og hendir því til hliðar og þá er það hætt að vera með í spilinu og maður sér spilin aldrei aftur – Ef maður sprengir bunkan, þá setur maður síðan lægsta spilið sitt út
  • ef td. allir fjarkar eru settir út saman, sama hvort þeir voru settir af einni manneskju eða mörgum, þá sprengir það líka bunkan og maður setur síðan lægsta spilið sitt út.
  • Þegar öll spilin í stokknum eru búin og spilari stendur uppi með auða hendi, þá má hann byrja að nota spilin sem hann á í borði en hann verður að setja öll efri spilin 3 fyrst, áður en hann getur sett neðstu 3 – Þar að auki má spilari ekki kíkja á neðstu spilin, heldur nota þau í blindni…
  • Að “lauma” – Ath maður má lauma inn spili, ef td. fjarki er í borði og maður á fjarka, þá má maður henda honum inn á milli þó það sé ekki komið að manni.
  • Mér skilst að reglurnar séu líka þannig að ef þú átt tvö eða fleiri af einhverju spili, þá verðuru að setja þau öll þegar þú setur spilið út og maður verður líka alltaf undir öllum kringumstæðum að setja lægsta spilið sem maður á, út.
  • Áhætta: Ef þú átt ekkert spil sem passar, þá máttu líka taka áhættu. Þá seturði í blindni efsta spilið í stokknum á bunkan – ef það passar, þá ertu sloppin(n) en ef ekki, þá dreguru bara bunkan eins og áður, en ert komin(n) með enn fleiri spil á hendi

Ég man ekki meira og þetta er mikið ýtarlegra en ég ætlaði að hafa það.. ég er örugglega að gleyma einhvejru, endilega nefna það í commentum…. þar að auki getur vel verið að aðrir þekki aðrar reglur

Indverskur skítakall

Það getur vel verið að þessar reglur séu þekktar annar staðar og margir þekkja þetta kannski, en flestir í Indlandi virðast þekkja “shithead” eftir þessum “viðbótarreglum”

  • Til að byrja með þá eru fleiri spil sem virka öðruvísi
    • 2 gildir allt
    • 3 gildir það sama og spilið sem var sett niður á undan, td. ef einhver setur ás út og maður setur 3 ofan á, þá gildir 3 sem ás.
    • 4 er þá orðið lægsta spilið
    • 7 þýðir núna “lægra en 7″ – þeas. ef maður setur 7 út, þá verður sá næsti sem á að gera (og bara sá næsti) að setja spil sem er lægra en 7, td. 4, 5, 6 eða aðra 7, en þá þarf sá næsti að gera lægra en 7. Ath að maður má setja
    • 8 er stopp-spil. Þeas. ef maður setur áttu út, þá má sá sem á að gera næst, ekki gera í eitt skipti. Ef maður setur tvær áttur út, þá hoppar það yfir tvo spilara. Þannig að ef þrír eru að spila og maður setur tvær áttur út, þá á maður sjálfur aftur að gera.
    • 10 sprengir bunkan eins og áður
    • Ás er bestur eins og áður
  • Maður má ennþá lauma spilum inn, en eingöngu ef maður á nógu mörg þannig að þau verði 4 og sprengi bunkan – og þá er líka komið að manni að gera. Þannig að þú getur “stolið senunni”
  • Ef maður á ekkert spil sem er nógu hátt (eða lægra en 7 þegar 7 er í borðinu) þá þarf maður eins og vanalega að taka bunkan, NEMA: að þú setur ekki sjálfur spil út, heldur á sá sem á næst að gera að sjá um það.
  • Sá sem sprengir bunkan á samt sem áður að setja spil næst út.
  • ATH: Í Indverskum skítakall, ef maður á fleiri en eitt af einhverju spili, þá ræðuru hvort þú setur öll út strax eða eitt eða bara tvö. Þeas. ræður alveg hvernig þú notar þau. Þar að auki þarftu ekki alltaf að setja lægsta spilið þitt út – ef þú sérð strategískan hag í að setja ásinn þinn strax út, þá er það bara hið besta mál.
  • Áhætta er ekki memm.

Ég hvet alla til að prófa þetta, leikurinn verður aðeins meira interesting og það eru fleiri möguleikar á mismunandi strategíu…

This entry was posted in Uncategorized and tagged , , , , . Bookmark the permalink.

0 Responses to Skítakall og indverskur skítakall

  1. Indverskur skítakall, einnig betur þekktur sem “Jenna skítakall” eftir strák sem spilar öll spil með amk 25 reglum umfram þær venjulegu.

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>