Það var fólk búið að segja okkur að Mysore væri skemmtilegri staður til að stoppa en Bangalore, svo við ákváðum að koma þar við á leiðinni til Kerala.
Það var alveg fínt að vera í nokkra daga í Mysore, eins og það átti að vera.. En síðan festumst við! Það byrjaði á því að Helga varð veik, fékk magapínu og hita. Hún slappaði því af í 2 daga og við lengdum hótelgistinguna… Svo varð Addi veikur!! Við ætluðum ekki að nenna að vera þarna lengur, svo við fengum lækni á staðinn – hann kom með pillur og allt batnaði á 2-3 dögum.
Síðan vorum við búin að tékka okkur af hótelinu, stefndum á rútustöðina, fundum rútuna.. en neibbs… ALLAR RÚTUR FULLAR. Örugglega eini dagurinn á árinu út af Dasara eða Diwali hátíðinni… Enn einn dagurinn í Mysore.. Við trúðum þessu ekki… Í þetta skiptið tékkuðum við okkur inn á eitthvað ódýrt (og ógeðslegt) hótel og þraukuðum einn dag í viðbót… Og svo erum við loksins SLOPPIN
Svona fyrir utan þetta var fínt í Mysore. Þar er svaka stór og flott höll, glæsilegur dýragarður og margt fleira.
Við hittum indverskan náunga í gegnum couchsurfing.org sem heitir Amit. Hann er yoga kennari og stundar líka “reiki” heilun. Við borðuðum með honum og 3 dönsurum frá New York, Perry bónda frá USA, Ann Marie frá Noreg og einhverri stelpu frá Hollandi eitt kvöldið. Það var skemmtileg tilbreyting að borða með og spjalla við fleira fólk.
Síðan elduðum við líka indverskan heimilismat eitt kvöldið, heima hjá Amit. Hann er með svona frekar lítið eldhús en við náðum samt að nota það til að flambera fína máltíð. Addi tók reyndar ekki mikinn þátt í því, Helga sá um þetta.
Þetta er svo geðveikt, ef við gætum nú bara munað þessa fjóra punkta þá væri lífið betra
Muuuuu út í garði
Fyrir utan Mysore Palace
“Viltu slást?”
“Láttu kallinn minn í friði, kisa”
Matur með mörgum
Perry og Amit
Kakkalakki … jafn langur og langatöng
Addi fékk lakkrís í afmælisgjöf!!!
Graffití
Síminn auðvitað festur á tré
Hún sér eitthvað, enginn veit hvað
Les á meðan Helga og Amit búa til Indverskan heimilsmat, það var grenjandi rigning og húsið rafmagnslaust, þessvegna eru kerti og flassmyndir
Helga í Indverska eldhúsinu að elda á gólfinu – það er eins og hún hafi aldrei gert neitt annað….
Þetta er svo útkoman
Og svo borðuðum við.. Þetta var bara nokkuð gott
Fyrir utan hótelið okkar, “Hotel Airlines” (það er samt ekki nálægt flugvelli og tengist engu flugfélagi á neinn hátt)
Snyrtilegasta götuhornið í Mysore
Þetta er örugglega leiðinlegasta starf í heimi, umferðalögga! Kaótísk umferð, bílaflaut og mengun.
Addi orðin veikur! Þegar hann fer undir teppi í 30 stiga hita er ekki allt með felldu ;/
Þarna vorum við að komast að því að allar rútur eru fullur – við verðum áfram í Mysore
Hey… það geta ekki allar pósur heppnast fullkomlega…























Gott að þið sluppuð loksins frá Mysore!
Samt nauðsynlegt að fá svona óvæntar uppákomur, sérstaklega fyrir okkur hérna sem erum að fylgjast með. Þetta er orðið svona survivor-spenna! hehe
Vona að heilsan sé orðin góð
Hlakka alltaf til að lesa næstu færslu!
Knús ;D
Haha sæt mynd þarna í lokin:) Alltaf jafn gaman að lesa bloggið ykkar, þið eruð langsætust!
Knús til ykkar
Bara nóg að gerast! Haldið nú áfram að safna í reynslubankann og setja inn myndir, æðisleg tásumyndin af Adda
Koss og knús
oj, kakkalakki
fáið ykkur þernu, ég skal senda mína yfir til ykkar
Samþykkt
þessi var reyndar úti… hehe
Hæhæ
Les síðuna ykkar reglulega, það er ekkert smá gaman að fylgjast með ykkur.
Bestu kveðjur Lilja R
gangi ykkur vel þarna úti, og í guðana bænum ekki tala við ókunnuga! hvenær fer maður svo að fá að sjá myndir!!
Arg.g. goddamnit, ég er að lola og rofla hérna á fullu.. góð comment
loksins segir einhver eitthvað fyndið í þessum commentum