Við fórum í ekta túristaskoðunarferð með leiðsögumanni sem heitir Hanuman (sem er fyndið, því að það er einn af guðunum sem heitir Hanuman) – Þá skoðuðum við Virupaksha musterið, Helga var blessuð af fíl fyrir að gefa honum 20 Rúbíur, skoðuðum annað svipað musteri með samskonar Bazar í 2 Km fjarlægð sem er hálf yfirgefinn og ýmislegt fleira.
Við fengum líka rauðan blett á ennið, sem margir hafa beðið með mikilli eftirvæntingu!!
Virupaksha musterið / hofið (hver er munurinn á musteri og hofi? Einhver?)
Inni í hofinu í 100-súlna-salnum
Þetta er fíllinn Laxmi að blessa Helgu (hann blessar mann bara ef maður gefur honum pening – Addi hafði ekki áhuga)
Komin með rauðan punkt á ennið

Hanuman að dreyfa úr sinni víðfermdu visku

Helga að komast í snertingu við innra sjálfið sitt

Þessar kýr voru líka að skoða musterið

Það er eitthvað svaka bonding í gangi þarna

Það sést ekki vel á svona lítilli mynd, en það eru rifflur á þessum steini – sem eru frá því að þeir voru hoggnir í sundur. Það eru sérstök járn sem eru fleiguð niður í steininn í langa línu þar til hann brotnar í sundur.

Fallegt útsýni yfir Hampi Bazaarinn að aftan frá

Þetta sem sést þarna fyrir aftan var notað sem leikhús í gamla daga fyrir aðalsmennina

Þarna er hann alveg orðinn ruglaður af innri leit, tengjast alheimsorkunni og af því að kyrja í of langan tíma
jiii hvað við erum fegin að búið sé að blessa hana Helgu okkar. Hvað þýðir rauði punkturinn? Addi ber þess merki að vera komin dálítið langt inn á við…þarf að fara að komast aftur í heim efnishyggjunnar
kv. Dísa og Katamamma

Rauði punkturinn er tákn um 3ja auga Shiva… Einn af þremur aðal guðunum.
Jú, ég reyni að komast inn í efnishyggjuheiminn – en þá líklega á öðru plani
kv, Addi

án þess að vera viss, þá held ég að það sé frekar talað um hof í goðafræðinni, hof Óðins eða Seifs o.s.frv.
Musteri held ég að sé þá þegar við erum komin yfir í trúarbrögð, hvort sem það er kristin trú eða eitthvað annað.
Svo getur vel verið að ég sé bara með rugluna sko! ;D

ahh ok, þetta eru nefnilega trúar-hús – sama hvað það heitir
þeir ferðast sumir mörghundruð kílómetra bara til að fara í svona trúarhús einusinni á ári í pílagrímaferðir og eitthvað… og í innstu hvelfingarnar megum við ekki fara nema við séum í réttri trú… hindúatrú í þessu tilviki

Æðislegar myndir og gaman að fylgjast með ævintýrunum ykkar. Er komin einhver dagsetning á heimferðina?
Knús Eyja

Vá ! Frábært að lesa þessi blogg! Voða eru þið skemmtilegir pennar! Frábærar myndir líka:) Haldiði áfram, verð daglegur gestur héðan í frá!

engin dagsetning á heimferð komin – fólk notar ekki dagatöl á indlandi

TAKK
TAKK