Monkey Temple, Hampi

Monkey temple (6)

Við fórum stuttan túr með Rickshaw ökumanni að nafni Ganesh – fínn náungi þrátt fyrir að vera Rickshaw ökumaður…

Við fórum á stað sem ber heitið “Monkey Temple” – Pínulítið musteri á toppnum á einni hæðinni hér. Það eru um 600 tröppur upp að musterinu. Dálítið erfitt í 35°C hita.

Flestir koma þarna til að kíkja á apana og til að dást að útsýninu – það er einmitt það sem við gerðum.

Verðið að tékka á þessu videoi:

[youtube=http://www.youtube.com/watch?v=_5PQAdduJog]

Monkey templeGanesh horfir út á vatnið og bíður eftir körfubátnum

Monkey temple (7)Helga í erfiðleikum með að Halda pósunni

Monkey temple (5)Ef þið hallið höfðinu þá sjáið þið að Addi stendur í raun á jörðinni og myndavélin hallar

Keyrt á leið í Apamusterið:
[youtube=http://www.youtube.com/watch?v=qVOH7l4F5kQ]

Monkey temple (3)Skemmtileg sveifla

Monkey temple (2)Stend yfir skólpánni á skólpbrúninni og drekk úr kókóshnetu með röri

Monkey temple (4)Helgu finnst þessi kókoshneta aðeins betri en Adda

Það var hátt í ánni sem umlykur Hampi Island (staðnum sem við gistum á) – þar sem flætt hafði yfir veginn, þurftum við að taka körfubát til að komast yfir af eyjunni og til baka.

[youtube=http://www.youtube.com/watch?v=OzJmL3tWomU]

Monkey temple (1)Látum drengstaulann vinna! Öðruvísi verður hann aldrei að almennilegum karlmanni… Hann aus af mikilum ákafa og áfergju.

This entry was posted in Indland, sept 2009 - feb 2010, Uncategorized and tagged , , , , , , . Bookmark the permalink.

10 Responses to Monkey Temple, Hampi

  1. Helga P says:

    Þetta er æðislegt hjá ykkur! :) Knús í klessu fallega fólk.

  2. inga frænka says:

    vá hvað þetta er fáránlega girnilegt ferðalag. hafið þið það nú yndislegt áfram og við sendum knús yfir höf og lönd!
    inga, sindri og sigurlína
    p.s. ekkert smá flott blogg, meira svona :)

  3. Elfa says:

    sjæt hvað það er fallegt þarna uppi.. var reyndar í mestu erfiðleikum með að horfa á myndbandið.. alveg að pissa á mig af lofthræðslu.. körfubáturinn á annað borð virðist awesome..
    en ætliði ekki örugglega að lauma einum apa í töskuna og koma með heim??

  4. Gunni says:

    Mér hefur nú ekki litist neitt sérstaklega vel á þessa bæi sem þið hafið verið að heimsækja. Maður er orðinn eitthvað svo sterilíseraður (lesist gamall).

    En nú erum við alveg að tala saman. Ótrúlega fallegt þarna.

  5. utiovissuna says:

    Það kemur api með okkur, pottþétt

  6. Dísa says:

    vá geðveikur bátur! en hvað eru aparnir eiginlega að bralla þarna…leit ekki út fyrir að vera sérstaklega mikill matur þarna uppi…það er eins og addi laðist alltaf að skólpinu, bíð bara eftir einni þar sem hann dettur út í! ..bjútifúl útsýni þarna uppi!!

  7. Eyrún says:

    Mjög skemmtilegt blogg!! Og þá meina ég ALLT bloggið :D Og alltaf frábærar og listrænar myndir :D

  8. erla maria says:

    usss, ka er gaman að sjá video :D

    og hey!!! ÉG VIL APA FRÁ INDLANDI!!

  9. utiovissuna says:

    Vá, takk fyrir ! :-) Gaman að ykkur finnst þetta skemmtilegt!

  10. utiovissuna says:

    Já, vonandi fleiri video á leiðinni og við erum búin að lofa öpum

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>