Margao, 14.-16. sept

Það er ekki margt hægt að segja um bæinn Margao… Við notuðum hann sem stoppustöð á leið til Hampi og gistum í mjög snyrtilegu og fínu hóteli í tvær nætur… Eftir hitann í Arambol vorum við farin að þrá loftræstingu svo við eyddum eiginlega öllum tímanum á hótelherberginu, sofandi með loftkælinguna í botni.

Margao (9)Sweet stuff – útsýnið frá Hótelherberginu

Margao (8)Yndislegt… hreint hótelherbergi – eitthvað sem maður tekur ekki sem sjálfsögðum hlut lengur…

Margao (7)Úrvalið í sjppunum er nú oft ansi gott… klósettpappír og pepsí

Margao (6)Þetta er jarðhæðin á hótelinu (reyndar er móttakan ekki þarna, en þvottahúsið er þarna)

Margao (10)Meira útsýni frá Hótelherberginu (við vorum btw. eiginlega bara á hótelherberginu)

MargaoÞvotturinn okkar kom mjög vel pakkaður til baka úr þvottaþjónustunni :)

En þegar kvölda tók, byrjuðu hræðilegar verur að færa sig nær okkur. Fyrst vissum við ekki hvað þetta var, Addi var viss um að þetta væru járnsmiðir í heimsókn. En síðan föttuðum við það.. þetta voru KAKKALAKKAR!!! Við tók mikil örvænting, við stukkum upp í rúm og héldum utan um hvort annað og öskruðum á hjálp. Þegar enginn kom, þá safnaði Addi í sig kjark, tók Kawasaki skóinn og þrusaði kakkalakkana í gólfið.

Það er merkilegt þegar maður drepur kakkalakka hvað mikið gumms er inn í þeim, járnsmiður verður einhvernvegin að engu, en kakkalakki verður að einhverskonar þykkri sósu, svona kannski karrý sósu. Kannski éta þeir mikið af karrý hérna (lol).

Margao (5)Ojjjjjjj….

Margao (4)ööööööhhhggggghhh…

Margao (3)hmmmphhhgghhh….

Margao (2)Leita að fleirum…

This entry was posted in Indland, sept 2009 - feb 2010, Uncategorized and tagged , , , , . Bookmark the permalink.

16 Responses to Margao, 14.-16. sept

  1. Momsý says:

    Hæ hæ
    Alltaf gaman þegar kemur nýtt blogg, þá er hátíð í bæ hjá mér :-)
    Hvar eru þið í dag og hvað er planið hjá ykkur?
    Eru þið alveg búin að ná ykkur af veikindunum?
    Eru flugurnar ennþá að fara illa með þig Helga min?

    kv. Momsý
    ps Það er komið haust á Íslandi.
    pps kannski er að rætast úr þið vitið hjá mér :-)

    Love you, knús og kossar

  2. Dísa says:

    Morðingjar !
    Mér sýnist Addi ansi vígalegur þarna með skóinn…alvöru víkingur þar á ferð :)
    Þið getið kanski farið að framleiða ykkar eigin karrísósu, spara fyrir fari fyrir fábrotna systir ?!
    Ég verð á spype á morgun fyrir hádegi!..vona að ég hitti á ykkur!!

  3. gestur says:

    Datt óvart inn á þetta blogg hjá ykkur. Þekki ykkur ekkert en gaman að skoða. Gott ráð: Munið að setja allt dótið ykkar í frystikistuna þegar þið komið heim – ÁÐUR en þið takið nokkuð upp!

  4. Dísa says:

    ups nei ég meinti fimmtudaginn…eða bara á sunnudaginn kl 11 eins og þið mamma eruð búin að plana ! knús

  5. Eyja says:

    Hæ gaman að lesa bloggið ykkar, mikið líf og fjör þarna hjá ykkur, farið varlega og skemmtið ykkar og njótið ferðarinnar.
    Knús Eyja

  6. utiovissuna says:

    sendi þér e-mail – kv addi :)

  7. utiovissuna says:

    Takk fyrir að lesa og takk fyrir gott ráð – við förum pottþétt eftir því!

  8. utiovissuna says:

    Ok, kannski fimmtudagsmorgun þá – við reynum! :-) við komum til bangalore á fimmtudagsmorgun á indverskum tíma, svo þurfum við að finna hótel og þá er kannski orðið passlegt að fara á netið :P

  9. utiovissuna says:

    TAKK :)

  10. Helga P says:

    Og ég kvarta yfir pöddunum í danmörku. Þær eru nú bara ekkert miðað við þetta. Ójbarastastasta!
    Alltaf gott að heyra í ykkur og sjá að ykkur líði vel, þrátt fyrir pöddurnar hehe.
    Knús

  11. hæ helga og addi er gaman

  12. Gunna og Rósa says:

    Rosa gaman að fylgjast með ferðum ykkar!
    Okkur finnst þið vera algjörar hetjur,
    ég veit samt ekki alveg með Kawasaki skóna Addi..

    Njótið lífsins á framandi slóðum og passið ykkur á pöddunum ;)
    kærar kveðjur hæðó lið

  13. Agnes says:

    þá veit ég það.. ég mun aldrei geta verið í Indlandi eða í öðrum löndum þar sem kakkalakkar eru án þess að hafa góðan skó að vopni!
    euhh…. þetta er vibbi.. væri í kóma núna á leið heim með sjúkraflugi..
    Þið eruð hetjur! ;)

  14. utiovissuna says:

    Hæ strákar…það er alveg klikkað gaman…bráðum setjum við inn myndir af öpunum og fílnum sem við sáum og öllum pöddunum, það eru mjög furðulegar og skemmtilegar pöddurn hérna á Indlandi :) á einu baðherberginu okkar voru fjórar stórar köngulær með kóngulóavefi…addi ætlaði að drepa þær en við leifðum þeim að vera svo þær myndu veiða allar flugurnar, það virkaði ágætlega, allaveganna þá fitnuðu þær ansi mikið á þessum 2 vikum sem við vorum þarna :)
    Vonandi er gaman í skólunum ykkar og ef þið viljiið þá gætum við sent ykkur risamargfætlu í kassa..hahaha
    bæ Helga og Addi

  15. Hæ hæ sætu skötuhjú, og ég hafði ekki einu sinni hugmynd um að þið væruð á leið til Asíu :)
    En augljóslega fer maður ekki þangað ef að hrein hótelherbergi og vestrænn matur er það sem leitað er að :P

    En hvað kom til? Eruð þið á löngu ferðalagi? (Í tíma talið þ.e.a.s.)

  16. utiovissuna says:

    Blessaður frændi, já hrein hótelherbergi eru ekki það sem maður fær hér :-)

    Okkur langaði bara að upplifa eitthvað alveg öðruvísi en þetta venjulega líf – við verðum sennilega í langan tíma í viðbót, ekki komið í ljós hvenær við snúum til baka. Við erum að skemmta okkur mjög vel hérna og margt að upplifa.

    Skilaðu til kveðju frá okkur!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>