Glæsileg pálmatré, hvítur draumasandur, heitur sólbaðssjór og krúttlegir kofar. Á hvaða stað erum við komin? Jú, þetta er Arambol… Ahhhhhhrambol.. Hér er hægt að slappa af og njóta lífsins.
Strandalíf
Skítakuldi (djók)
Krúttlegar þessar búðir
Við eyddum meirihlutanum af okkar tíma hér á veitingastöðum, baða okkur í sólinni, spila pool (Helga rústaði Adda, 5-3) og svo auðvitað hékk Addi mikið inn á Internetstofunum (enda voru margar blog(g) færslur þessa helgi)
Það eru mikið af krúttlegum villihundum hérn a sem ýmist leika sér stöðugt á ströndinni eða taka því MJÖG rólega á veitingastöðum við lappirnar á miskunarsömum túristum sem oft hafa auka bita til að gefa…
Einn geisp fyrir afa!
Manni langar bara að leggjast hjá honum og kúra… fyrir utan flærnar og það
Voff voff, .. voff voff voff… grrr.. voff
[youtube=http://www.youtube.com/watch?v=0ABUb2YoRLs]
Við gætum alveg ímyndað okkur að það sé næs að vera hundur hérna. Það á þig enginn, þeir lifa með mönnunum í samfélaginu, snýkja mat, borða upp úr ruslinu og leika sér oft margir saman í einu og virðast mjög hamingjusamir.
Þarna sést herbergið sem við gistum í
Labb labb
Helga horfir á þennan texta…
Klettar og tré… ef þið skilduð ekki sjá það
Þetta er útsýnið af svölunum okkar
Önnur mynd af útsýninu af svölunum.. hér sést samt draslið
Inni í bænum
Svalirnar okkar
Tælandi stelling… ekki í Tælandi
En gerðust hræðilegir atburðir í Arambol! Helga var bitin herfilega af moskítóflugum. Hún gat meira og minna ekkert gert í 48 klukkutíma nema liggja og bíða eftir að bitin gréru
Svo til að bæta svörtu ofan á svart fékk Addi svo 39°C hita og uppköst, niðurgang ofl djúsí stöff… En við erum bæði mjög hress núna!
Bátur
Djúpar pælingar yfir matnum
Belja á leið hjá
Pálmatré, runnar, klettar, steinar og sölubás. Borðbrún og sést smá í stól.
Einmanalegur… þjóninn þarna vinstramegin er frábær náungi.. talar samt mjög einkennilega…
Á leiðinni á netið.. líklega að setja inn bloggfærslu
[youtube=http://www.youtube.com/watch?v=pOgFipFggMQ]
Æsisaga Helgu: Nóttin eftirminnilega
Það er eins og pöddurnar hafi grafið sig undir húðina og séu nú að reyna að naga sig út í gegnum bitin. Helvítis moskítóbitin. Í hvert sinn sem ég beini huganum eitthvert annað, kalla pöddurnar á mig, allar í kór, undan skinninu. Þær eru frekar, lúmskar, sjálfselskar og reyna að hafa fulla stjórn á mér. Ég reyni að slaka á, hugleiða og lesa en ekkert gengur.
Það er ekki fyrr en ég byrja að væla í Adda að ég átta mig: Hann er verr staddur. Hann er kominn með 39° stiga hita. Sveittur og þrekaður reynir hann samt að hughreysta mig.
Shit, vatnið er eiginlega búið.
Pöddurnar taka sér hlé á meðan ég sinni sjúklingnum. Finn til allskonar pillur og hagræði koddum og svefnpokum. Þær bíða í ofvæni eftir mér. Ég fer inn á bað og nýt þess að skola fótleggina í köldu vatni. Ég leggst inn í tjaldið, vona það besta en meðvitundin finnur þær aftur. Þær byrja hægt að kítla og skríða. Þreytan er sterkari í þetta sinn og ég svíf á vit meðvitundarleysis.
Heyri hljóð á baðherberginu. Gæti þetta verið dýr sem hefur komist gegnum netið á glugganum? Heyri annað hljóð, hóst, hvað er þetta? Innbrotsþjófur? Sný mér að Adda til að vekja hann. Shit, hann er farinn, farinn inn á baðherbergi að æla.
Ó mæ fríking god. Ég stend upp og finn hann liggjandi á skítugu klósettinu, “þetta er allt í lagi” segir hann. Ég get ekkert gert nema þurrka á honum sveitt bakið með skítugum bol.
Klukkan er að verða hálf fimm um nótt. Við leggjumst aftur og ég bið pöddurnar að hafa sig hægar á meðan ég reyni að endurtaka það ástand sem ég var í rétt áðan. Nú er ég alveg að sofna. Að deyja úr þorsta en ég verð að sofna. Vatnið er búið. Sofnuð.
Ég vakna. Lít á gluggann, jess, það er orðið bjart.
Þori varla að líta á klukkuna, hún er 8. Jess, það ætti að vera opið einhverstaðar. Klæði mig og hleyp niður, kaupi vatn og banana og gef Adda. Hann er glaður og þakklátur, mælir sig, 37,5° – okkur er borgið.
Maður finnur dálítið til með ykkur – og klæjar við lýsingar Helgu. En svo skoðar maður myndirnar af ströndinni – ekki slæmur staður til að vera á þannig séð! En vonandi hafið þið skriðið saman og njótið ferðalagsins. kveðja úr dalnum
vá en dramatískt maður! húhh jæja gott að vita ekki af þessu fyrr en það var yfirstaðið…vona að þið séuð bara hress!
Þetta var geðveik saga. Vona samt að ég fái ekki að “heyra” aðra slíka af ykkur
Gangi ykkur allt í haginn. Foreldrarnir biðja að heilsa.
Helga lýsing þín á moskítóbitum er alveg mögnuð. Deildi Æsisögunni með vinkonu minni í vinnuni og hennar viðbrögð voru þessi (Hún Helga frænka þín er þvílíkur penni að ég skora á hana að skrifa ferðasögu og gefa hana út.) ég tek undir með henni. Vona að þið hafið það sem allra best og góðir andar forði ykkur frá moskító og magapínu.
Hæ Helga og Addi gaman að fylgjast með og lesa það sem þið skrifið. Helga mín þú ert skemmtilegur sögumaður og láttu ekki pöddurnar taka völdin
Þetta er örugglega mikið ævintýri hjá ykkur.
Frá Skerjagarði er allt fínt að frétta en það vantar samt þig í hópinn. En knús frá okkur öllum.
kveðja Sóldís