Þá erum við komin til Panaji, illa sofin en jákvæð. Panaji er 90 þúsund manna portúgölsk nýlenda. Við bjuggumst við eitthverju aðeins snyrtilegra en Mumbai þar sem þetta er bær í aðal ferðamannasvæðinu á Indlandi. Það var samt alveg jafn sjúskað. Sumt var auðvitað fallegt og athyglisvert en það besta var að hann var mun rólegri en Mumbai. Það var einmitt það sem við þurftum.
Helga pósar á svölum
Addi pósar hjá á/skólpi (á og skólp er það sama á Indlandi)
Panaji er í Goa, sem er fylki í Indlandi sem er þekkt fyrir að vera mikill ferðamannastaður. Ekki nóg með að það sé eitthvað um vesturlandabúa hér, þá er líka mjög mikið af Indverskum ferðamönnum á svæðinu. Panaji er stærsti bærinn í Goa.
Í hliðarsundi
Við tröppurnar á hótelinu okkar
Veltir fyrir sér heimspekilegum spurningum að indverskum sið.
Smá meira pós…
Þetta er mjög fræg kirkja… sem við fórum ekki í
Við skildum ekkert í því hvað Indverska fjölskyldan, sem rak hótelið okkar, talaði skiljanlega ensku. Seinna heyrðum við þau tala saman á tungumáli sem líktist portúgölsku. Þess ber að geta að herbergið var ótrúlega hreint!
Hótelið var yndi, hreint og kósí. Það var reyndar ekki loftkæling en hver vælir yfir því þegar maður kemst í heita sturtu.
Eina skiptið sem við höfum þurft að nota áttavitann hingað til ![]()
Á myndinni sést líka Julian, sem var með okkur í lestinni til Panaji
Prepaid taxi counter… gjössovel
virkar amk aðeins friðsælla og hreinna á myndunum
Var að skoða á googlemap hvar á Indlandi þið eruð, er ekki svo góð í landafræðinni þar.. hehe
Þar til næst, knússs!
Virkar flottur staður – kannski svona fyrir utan skólpið! En hamingjuóskir á afmælisdaginn Helga! Gott að þið eruð glöð! Bestu kveðjur.
Siggi, Sirrý og Guðrún Helga
ú lítur allavega rosa vel út…merkilegt með ánnar, maður fær ekki löngun til að stökkva út í eins og þegar maður hjólar framhjá elliðánnum! hvernig er með sturtuna?.er það ekki bara upphitað kúkavatn ?? ..annars eruð það kanski bara við sótthreinsunarkynslóðin sem eigum erfitt með að lifa með eigin úrgangi..mamma var allavega að rifja upp að hún lék sér að því að hoppa yfir kúka í Skerjafyrðinum í gamla daga.
Gott að þið hafið það gott, alltaf gaman að sjá ný blogg !! bless kv. Dísa
p.s. hér er alltaf hálfgerð keppni um hver sér bloggið fyrstur…pabbi rústaði þessu í morgun, var kominn í tölvuna fyrir átta :s
já það er svosem ekkert að því að vaða yfir smá kúk..
sturtuvatnið hérna er ekki skolp, bara vatn virðist vera, en það er oftast bara kalt… sem ég er ekki mjög vanur, en er að venjast (Addi)
Gaman að ykkur þykir blog(g)ið skemmtilegt!!!
Kveðjur frá Indlandi
Ég skila því til Helgu
Hæhæ
Ég fæ ekki séð að þið séuð neitt að verða brún, er ekki rosa fínt veður hjá ykkur? Addi talaði um á fésinu að það væri of heitt til að klifra.
Hvernig er svo planið hjá ykkur? Hvert stefni þið næst? Ætli þið að stoppa kannski eitthvað þarna?
Uhh… thetta er nattla doldid gamalt… bradum kemur mjog fyndin mynd af mer berum ad ofan.. hvitur a maganum en brunn a andlitinu… soldid fyndid en hallaerislegt
Momsý bíður mjög spennt eftir að sjá þá mynd
Ertu eitthvað búinn að klifra meira?
Já svona eins og veður leyfir (verður of heitt upp úr 10 á morgnanna, þá getur maður ekki komið við klettinn)
Hef farið eitthvað á hverjum degi – maður þarf bara alltaf að vakna um kl 6:00 á morgnanna til að fá gott og milt veður
Hvað er heitt hjá ykkur eiginlega, þið nefnið það aldrei
Kemstu kannski á msn einhverntíma, ég þarf svo að spjalla við þig? Ég er alltaf vöknuð snemma eða vaki lengur. Það er kannski ekkert msn á þessum vélum sem þú kemst í?
Saknaðarkveðjur frá Momsý til ykkar beggja.
usssss, ka það er gaman hjá ykkur!!
til hamingju með afmælið um daginn, elsku helga mín :*
já þetta er líka eitthvað sem við spurjum okkur oft að
við erum bara ekki með hitamæli….það er semsagt hitamælir og flugnaspaði sem hefði átt að fara í töskuna. Það var einn Indverskur ferðalangur sem sagði okkur að í sólinni væri svona 30-35…sem hljómar sennilegt. Allt of heitt allaveganna höfum velt því fyrir okkur að taka innanlandsflug norður í fjöllin og vera svolítið kalt, maður er farin að sakna þess
uuuuu… ok, kannski þú, Helga… farðu bara og skemmtu þér fyrir norðan, mér finnst þetta fínn hiti
hmmm… skrítið… commentið kom fyrir ofan commentið hennar helgu…