Við tókum í fyrsta skipti næturlest frá Mumbai til Panaji – 23:05 til 11:20.
Helga svaf í “Farmersmarket” og svefnpoka en samt var kalt eins og í júníútilegu á Íslandi.
Addi sá hinsvegar um að vakta kojuna neðan frá, því hann taldi sig nokkuð vissan um að einhver mundi stela bakpokunum okkar.
Við sofnuðum samt bæði að lokum við dýrðlegan “Chai! Chai! Chai!” og “Bani! Bani! Bani!” söng sölumannanna sem strunsuðu fram og aftur gangana af miklum metnaði.
Við vorum með klefafélagana Julian frá “Túlús” í Frakklandi og Rubens frá Goa. Heiðursmenn!
Þess má geta til gamans að lokum að þegar maður fer á klósettið í lestinni þá pissar og kúkar maður beint niður á lestarteinana. Indian style!

Þið ættuð bara að vita hvað það er æðislegt að fá að fylgjast svona vel með ykkur
Knús og kossar frá Momsý í hundleiðinlegu haust veðri á Íslandi.
Jæja þannig að farmers market peysan er að standa sig á Indlandi ! Hvernig er chai teið?
gaman að heyra í ykkur !!
Mig langar að kúka og pissa á lestarteinana á Indlandi.
P.S. Adolf sagði bara, gaman að vinna við að gera við lestarteinana haha!
Maður veit orðið allt um klósett á Indlandi eftir að lesa þetta hjá ykkur
Frábært að lesa svona fréttir frá ykkur í Indlandi. Vonandi gengur allt vel. Ég verð samt að viðurkenna að þið eruð eiginlega búin að eyðileggja Indlands mýtuna mína… þegar ég hugsa um Indland þá held ég að það angi af reykelsi og blómum… en mýta er líka bara mýta… silly me!
Gangi ykkur vel og farið með gát! Hlakka til að lesa meira, mér finnst þetta mjög spennandi allt saman.
Chai teið er erfitt… það er erfitt að fá það án mjólkur … þeas. þeir skilja ekki hvað það þýðir.. þeir eru svo lélegir í ensku blessaðir…
Já, ég var einmitt að kúka á lestarteina rétt áðan!!!! (Addi)
Já, við tókum eftir því að það vantaði mikið af upplýsingum um klósett hérna, ákváðum að best væri að gera eitthvað í því
Nei nei.. hvaða hvaða.. það er fullt af blóma- og reykelsislykt (svona í bland við hland- rulsla- og kúkafýluna)
Frábært að lesa af ævintýrinu ykkar!!! Hlakka til að lesa meira, mæli eindregið með austurströndinni, þá sérstaklega hotel ideal beach resort í mahabalipuram (ef þið fáið nóg af herbergjunum indian style)!! Svo vitiði að það er ávallt opið hús fyrir gistingu og líka bara stuð hér í Sydney ef þið eigið leið hjá!
Mér finnst þetta snilld…Indian style hahaha! Pálmi fór á klósettið áðan á Bruger King og ég spurði hann hvort hann ætlaði að fara Indian style og hló svo…hann horfði bara á mig eins og ég væri klikkuð hahaha! Mér þótti ég mjög fyndin!
haha.. já, mjög fyndin… þetta er nýtt orðatiltæki sem verður örugglega notað meira í framtíðinni