Ef Mumbai væri mannvera, væri örugglega löngu búið að setja hana á klepp
Þessi borg sefur aldrei. Bílar flauta alla nóttina, fólk þvælist um göturnar alla nóttina, vinnur alla nóttina. Það er allt troðfullt af fólki af öllum stéttum alla nóttina.
Rölt um bæinn
Spurning hverslu vel það sést á þessari mynd, en húsþakið og tréð eru gjörsamlega þakin af fuglum.

Allstaðar og á öllum tímum er heimilislaust fólk. Oft svaf fólkið bara á miðri gangstéttinni um miðjan dag. Klofandi yfir fólkið eru allt frá Sari-klæddum-glæsikonum og virðulegum viðskiptajöfrum til lítilla barna sem betla og sveittra unglingsstráka sem stara á okkur þegar við löbbum framhjá.




Athyglin er einmitt óþægilegasti hluturinn og það sem slær mann dálítið út af laginu. Maður sker sig rosalega mikið út úr. Oftast horfa allir á mann og það er sérstakt að vera allt í einu orðin í minnihluta í samfélaginu.
Til dæmis tókum við ekki margar myndir út á götu í Mumbai, því það er svo mikil fátækt að maður fær nettan bömmer yfir því að vera að taka mynd af því sem okkur finnst merkilegt. Hús að detta í sundur, haldin saman með spottum, klæðum og spítuafgöngum og furðulegustu farartæki sem maður getur ímyndað sér.
Við Gateway of India

Kröfuganga fyrir utan hótelið okkar:
[youtube=http://www.youtube.com/watch?v=5vNsmDREx8o]
Það koma upp miklar paranoju hugsanir upp hjá manni og ekki hjálpar til að þú labbar varla heilan meter án þess að vera spurður um “taxi for you?”, “please buy rice for my baby”, “baby needs food”, “hello sir, need taxi?” eða hvað sem þeim dettur í hug að bjóða manni til að ná af manni pening.
Eftir 4 daga af þessu menningarsjokki og geðveiki þá erum við ótrúlega glöð yfir því að vera að fara úr borginni.
Þessi var mjög ánægður með að við tækjum mynd af honum


Bókasafnið í Mumbai:
[youtube=http://www.youtube.com/watch?v=eKBwJhOvNPs]
Og svona er svo að keyra um í leigubíl í Mumbai – off season amk:
[youtube=http://www.youtube.com/watch?v=A3NltC-O6fQ]
Jiii hvað það er gaman að fylgjast með ykkur
Hvert farið þið næst á eftir Mumbai?
Við fórum til Panaji (í Goa) og þaðan til Arambol (líka í Goa) (blogg færslurnar eru soldið á eftir í tíma, búið að skrifa þær fyrir löngu) – næst förum við til Margao og þaðan til Hampi sem er lengst inn í miðju landi
vá hvað betlararnir hljóta að vera erfiðir…já og fátæktin! Þið lookið með endemum vel við gateway to India !
Hlakka til að heyra hvernig er í Goa
Ótrúlega gaman að fylgjast með. Verð samt að segja að ég held að ég gæti ekki höndlað svona borg eins og Mumbai, er svo agalega mikil hæna.. hahaha
Hlakka til að lesa næstu færslu, knús til ykkar
Takk fyrir það, við reyndum að vera töff… jú betlararnir eru erfiðir og fátæktin og allt það..