Pósthúsið í Mumbai

Það voru ýmsir hlutir sem við höfðum tekið með okkur sem við vorum farin að sjá fljótlega að voru algjör óþarfi. Auka peysa, auka buxur, auka snúrur, of margir bolir, smásjá sem bilaði, lyklar osfrv, svo við ákváðum að taka slatta í poka og senda aftur til íslands.

Pósthúsið í Mumbai var frábær staður. Þar leit allt út eins og maður hefði ímyndað sér að pósthús í bretlandi hefði litið út 1930. Þar að auki virtist allt einnig virka þannig. Það eru engar tölvur (frekar en annarstaðar), öll innréttingin er svona gömul tréinnrétting, maður sá þá bakvið afgreiðsluborðin innsigla umslög með því að bræða eitthvað gumms á þau og svo má ekki gleyma blessaðri myglu- og fúkkalyktinni :-)

pósthúsið í mumbai (3)Pós(t)að við afgreiðsluborð fyrir bögglapóst – ef böggullinn er stærri en þetta gat, þarf að setja hann í gegnum rimmlana fyrir ofan út í horninu lengst til hægri – þar vantar rúðu í grindina… Indian style

Ef maður ætlar að senda pakka frá Indlandi þá er reglur um það að pakkinn verður að vera saumaður saman í efni og því eru kallar sem standa út á horni fyrir utan pósthúsið og bjóða upp á þá þjónustu. Þeir eru bara með tvinna og efnisafganga sem þeir beita af mikilli lægni og sauma saman hvað sem er eins og hendi sé veifað.

pósthúsið í mumbai (1)Verið að sauma út böggulinn okkar

[youtube=http://www.youtube.com/watch?v=zdA1wXRcBNo]

pósthúsið í mumbai (2)Addi kominn með eggið

pósthúsið í mumbaiHeimilisfang skrifað á böggulinn – vona svo að þetta komist til skila

This entry was posted in Indland, sept 2009 - feb 2010, Uncategorized and tagged , , . Bookmark the permalink.

3 Responses to Pósthúsið í Mumbai

  1. Dísa says:

    vá geðveikt pósthús..er ekki mjóuhlíðarmíglan bara ágætis ilmur eftir þetta ævintýri ?! :)
    Hvernig er góa? er Addi orðinn góður?

  2. Arnór Heiðar says:

    Jú, ég er orðinn hress. En jú, það er vond lykt af öllu hérna :P

  3. Helga P says:

    Mmmm finn alveg lyktina í gengum færsluna :) hehe
    Já, það verður gaman að sjá hvort og hvenær pakkinn verður kominn til íslands :)

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>