Herbergið okkar á Hotel Oasis, Mumbai

Hér sjáið þið smá video af mögnuðu herbergi. Þetta er hótelherbergið okkar í Mumbai, á Hotel Oasis. Þarna er loftræsting, sér baðherbergi, helling af sjónvarpstöðvum og að flestu leiti fínt.

Það er reyndar sterk myglu- og fúkkalykt þarna en það er hvort eð er alltstðar þannig í Mumbai – á öllum veitingastöðum, verslunum osfrv.

[youtube=http://www.youtube.com/watch?v=PwvITyxQA14]

Þetta var frábært baðherbergi. Það lækkaði reyndar örlítið í áliti með tímanum eftir að við komumst að nokkrum staðreyndum:

  1. Það var lítið maurabú inn á baðinu svo það var stöðug traffík af pinkulitlum kvikindum þar inni.
  2. Það var krani fyrir heitt vatn, en það var samt ekkert heitt vatn, svo sturtan var mjög köld og því oftast bara hálf mínúta.
  3. Það var viðbjóðsleg hland-kúka-skolp lykt inn á baði.
  4. Þegar við förum í sturtu, þvoum okkur eða sturtum niður klósettinu, þá liggja pípulagnirnar bara beint úr veggnum og út á götuportið við hliðina á hótelinu. (Sem skýrir atriði númer 3.)

hotel-oasis (3)

hotel-oasisAddi með maur í smásjánni! – ótrúlegt hvað svona lítið dýr getur verið viðbjóðslegt í smásjá – stuttu seinna bilaði smásjáin og hún var sent með póstinum aftur til íslands :-(

hotel-oasis (5)Moskítótjaldið okkar – sem flestir virðast hafa mikinn áhuga á

hotel-oasis (4)Vatnsauglýsing – btw. flöskuvatnið á Indlandi er verulega gott!

hotel-oasis (6)Sprengingar fyrir utan herbergið okkar

This entry was posted in Indland, sept 2009 - feb 2010, Uncategorized and tagged , , . Bookmark the permalink.

0 Responses to Herbergið okkar á Hotel Oasis, Mumbai

  1. utiovissuna says:

    Úps.. gleymdi að setja inn videoið … kemur eftir 20 mín

  2. Helga P says:

    Vá…hefur fólk þarna ekkert annað að gera en að liggja á flautunni í umferðinni? bííbbb…bíííbbbb….allt að verða vitlaust hehe :)

  3. utiovissuna says:

    Já, algjörlega Helga. Ef þú mundir spyrja Indverja hvert væri mikilvægasti partur í ökutæki, þá mundi hann segja flautan. Þeir nota hana stöðugt bara til að láta vita af sér.. það eru eiginlega engar akreinar, fólk keyrir bara þar sem er pláss og flautar svo svo aðrir ökumenn taki eftir því og keyri ekki óvart á það…. mjög taugastrekkjandi fyrir íslendinga :-)

  4. Helga P says:

    ‘o mæ god! Ég myndi fríka út! hehe

  5. Momsý says:

    JIIIIIBBBBBBÍÍ Addi ég fann þetta hahahaha !!!!!

  6. Momsý says:

    Það er eins og Addi sé að sniffa dóp á myndinni en ekki kíkja í smásjá hehe.
    En vilji þið gera svo vel að útskýra hvað þið meinið með að það séu sprengingar fyrir utan gluggann :O:O:O ????

  7. utiovissuna says:

    Til hamingju!

  8. utiovissuna says:

    Það voru bara rakettur… það var einhver kröfuganga eða eitthvað fyrir utan

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>