Matur nam nam

Við vissum ekki hverju við gátum búist við hvað varðar mat þegar við kæmum til Indlands. Það er mikið búið að vara okkur við óhreinum mat, matarteitrunum og ferðamannaveiki en okkur til mikillar létti er matur bara verulega góður og enn sem komið er, höfum við verið MJÖG HEPPIN með það að það hefur enginn niðurgangur eða slíkt mætt okkur enn. (7,9,13)

Hér eru nokkrar myndir frá mismunandi veitingastöðum.

matur nam nam (1)Hámað í sig á veitingastað með loftræstingu – Vegitarian masala

matur nam nam (2)Fallega raðaðar servíettur á þessum stað

matur nam nam (3)MUKHWAS – Maður fær þetta með reikningnum – Á að hjálp meltingunni og bæta andremmu

matur nam nam (4)Við urðum glöð þegar við fundum “venjulegan mat” (McDonald’s)

Erfiðast er alltaf að reyna að komast að því hvað alltsaman er sem stendur á matseðlinum. Ef maður spyr þjóna, td. “what is this?” og bendir á eitthvað sem heitir kannski “Veg. Chowmen” á matseðlinum, þá skilja þeir oftast ekki og svara í staðinn “One Chowmen, sir?” – svo vindur misskilningurinn upp á sig :-)

Indland er líklega draumaland grænmetisætunnar því stór hluti þjóðarinnar borðar ekki kjöt vegna trúar sinnar. Það er því rosalega mikið og gott úrval af mismunandi grænmetismat á boðstólnum.

Oftast þegar maður biður um reikninginn fær maður líka svona lítil lakkrísfræ í skál með tangstönglum. Þeir segja að þessi fræ hjálpi meltingunni.

Svo fundum við mcDonalds, sem var gaman…

Og við fundum líka Barista/Lavazza kaffihús, sem hetir “Escape to Italy” eða eitthvað álíka – það var í fyrsta skipti sem hægt var að fá almennilegan kaffibolla og líklega líka í síðasta skiptið í langan tíma og þá varð kaffifíkillinn í Adda glaður…

matur nam nam

This entry was posted in Indland, sept 2009 - feb 2010, Uncategorized and tagged , , , . Bookmark the permalink.

0 Responses to Matur nam nam

  1. Eyrún says:

    Gott að þið eruð hress.
    En eftir stendur ein spurning, hvað er veg.chowmen?

  2. utiovissuna says:

    Það er reyndar kínverskur matur.. núðlur með einhverri sósu :-)

  3. Elfa says:

    Djö.. ég öfunda ykkur svo mikið meira að segja af skítugu hótelveggjunum og sturtunni yfir klósettinu (var með svoleiðis fyrstu tvö árin sem ég bjó í rvk.. no joke) ..og kaffileysi og áhættan á niðurgangi við hvern munnbita.. all sounds sooo nice.. :)
    geðveikt gaman að skoða myndirnar af ykkur.. eins og maður sé ‘memm’..

  4. Helga P says:

    Girnó maturinn! Þið eruð svo dugleg og yndisleg. Njótið ykkar :)

  5. Gunni says:

    Tvö ókeypis húsráð. Annað fyrirbyggjandi, hitt uppbyggjandi.

    Valdi vinur minn átti tvær ömmur, eina danska og hina íslenska. Í hans fyrstu utanlandsferð gáfu þeir báðar góð ráð gegn magakveisum. Sú íslenska mælti með að taka Lýsi, en sú danska hafði óbilandi trú á Gammel Dansk. Við tókum bæði og varð ekki misdægurt.

    Ef allt fer á versta veg get ég hins vegar mælt með hinni svokölluðu “vont vont gott gott” aðferð. Hún fellst í því að sturta í sig eins og einu mjólkurglasi af þeim görótta drykki Fernet Branca. Óbrigðult.

  6. Dísa says:

    úú grænmetishimnaríki !
    …vona að Adda sé að batna, annars sendi ég Addabangsa bara með hraðpósti, húsráð Gunna gæti nú reddað þessu.
    Vona að flugurnar fari að láta þig vera Helga mín
    Hlakka til að heyra í ykkur þegar þið farið að hressast !!

    knús frá mér

  7. Gestur og Sigrún says:

    Gott að þið komust heil á leiðarenda og gaman að skoða myndirnar. Veriði nú dugleg að borða grænmeti og McDonalds. Hvernig er veðrið annars?

  8. Addi, Magga og Arngrímur says:

    Gaman að fylgjast með ykkur, þvílíkt ævintýri. Minnum á snafsaráðið eftir matinn ; ) Vonandi batnar maginn fljótt og bitin. Knús á ykkur

  9. Arnór Heiðar says:

    Takk fyrir öll sömul

    Það getur reyndar verið að ég hafi fengið kamfíló/salmónellu, en ég var með sýklalyf frá lækninum ef slíkt skildi gerast – fékk 39 stiga hita, niðurgang og uppköst – ekta Indverkst :-P nammi namm!!!

  10. Siggi og Sirrý says:

    Hæ Addi og Helga, Guðrún vildi senda kveðju og er mjög hrifin af myndunum af ykkur! Hún vildi samt helst sjá mynd af sér með! Hún var smá rugluð í tengingunum og bað um að sjá mynd af Helgu systur hans Adda bróður!
    kveðja af Bakkaveginum

  11. utiovissuna says:

    Gaman að heyra! Við sendum líka knús yfir til Guðrúnar!

  12. Sandra says:

    Indland greinilega þá landið fyrir vistvæna grænmetisboltann í Netvistun

  13. utiovissuna says:

    Algjörlega… vistvæni grænmetisboltanum finnst lífið svo náttúrulegt og æðislegt þegar maður labbar í mannaskít svona út á götu :D

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>