Fyrstu klukkutímarnir í Indlandi

Við erum lent ódauð á Indlandi!

Það er stórskrítið að labba inn í teppalagða flugstöð með öryggisvörðum inn á hverju klósetti sem passa að maður þvo sér um hendurnar eftir að hafa migið og noti örugglega sápu og þurrki sér vel.

Annað sem er stórskrítið er að við að labba svo út úr flugstöðinni með umþb 300 leigubílstjóra beint fyrir utan, girtir af innan girðinga, eins og lömb í réttum, allir með sitthvort airport pickup skiltið öskrandi á mann hver yfir annan.

Eftir að hafa fundið mjög reiðan leigubílstjóra sem var með “Arnor Sigurdsson” á skilti þá komum við loksinns á “Hotel Highway Residency” – Þar voru nokkrir menn tilbúnir til að gera allt fyrir okkur – það var samt soldið skrítið að láta einhvern lítinn strák næstum bugast við að halda á báðum 13 Kg töskunum okkar fyrir okkur upp stiga og inn á herbergi…

Talandi um herbergið

Fallegar myndir

Fallegar myndir

fyrstu-klukkutimarnir (12)

útsýnið

útsýnið

fyrstu-klukkutimarnir (10)fyrstu-klukkutimarnir (9)fyrstu-klukkutimarnir (8)fyrstu-klukkutimarnir (7)fyrstu-klukkutimarnir (6)fyrstu-klukkutimarnir (5)fyrstu-klukkutimarnir (4)fyrstu-klukkutimarnir (3)fyrstu-klukkutimarnir (2)fyrstu-klukkutimarnir (1)

Okkur langar að lýsa því hvað það voru skítugir veggir, skítug loftræsting, skítug sturta beint fyrir ofan klósettið, rakt, heitt, myglað, skítugt osfrv, en myndirnar tala líklega sínu máli.

Svo er bara að skríða upp í moskítótjaldið okkar og reyna að ná smá svefni.

This entry was posted in Indland, sept 2009 - feb 2010, Uncategorized and tagged , , . Bookmark the permalink.

0 Responses to Fyrstu klukkutímarnir í Indlandi

  1. utiovissuna says:

    Internetið hérna í þessu lobbyi er greinilega dálítið lélegt.. veit ekki hvort þetta sé allt í rusli núna

  2. Dísa says:

    já minnir mann á að koma inn á Hótelið á kúpu nema þetta er sona 10 sinnum skítugara og míglaðara. En á meðan Addi pósar ennþá og Helga drekkur kók með bros á vör hef ég engar áhyggjur !
    …úú fíla moskídótjaldið..pínu eins og prinsessu rúm :)

  3. Momsý says:

    Addi hringdi í mig áðan, allt gott hjá þeim. Pínu stressuð kannski útaf öllum sem vilja selja þeim eitthvað “fínerý”. Þau eru í Goa, sem er ferðamannastaður. Báðu svo að heilsa öllum.

    Kveðja, Sigrún

  4. Sirry says:

    Gott að sjá að þið virðist heil á húfi – Addi virkar samt frekar þreyttur! Lesum spennt hverja færslu og gleðjumst mjög yfir að skordýrin eru ekki mjög stór! kveðja úr dalnum

  5. Agnes says:

    Glæsilegt hótelherbergi! Ekki að það skipti neinu máli, varla ætlið þið að eyða miklum tíma þar hvort sem er :)
    knús! ;)

  6. Helga P says:

    Já þetta slær meira að segja út herberginu sem við vorum á á Benidorm Agnes hehe :) Það var kúl herbergi!
    Gott að heyra að þið eruð heil á húfi elsku Helga og Addi.

  7. Helga P says:

    p.s. vonandi að þessi köttur sé í lagi sem er að þvælast uppi á þaki á húsinu við hliðina á.

  8. Erla María says:

    kósí, væri til í kúrið á milli ykkar í flugutjaldinu

    (það lítur smá út eins og svona “nærfatapoki” sem maður setur í spari nærurnar í áður en þær fara í þvottavélina)

  9. Gunni frændi says:

    Aha..nú veit ég hvar Tjaldborg fékk efnið og sniðið í gardínurnar á tjaldinu mínu.

  10. helga hreiðarsdóttir says:

    hahaha..já þetta tjald stendur fyrir sínu :) gleymdi reynar að skrifa það en Addi var tilbuin að fara aftur heim þarna á tjald-myndinni…já þetta var ekki alveg jafn kósí og flugvélin :)

  11. Raggi Árna says:

    Hva! Eru þið ekki búin að finna GAP, TARGET eða
    WAL – MART:)

    Gaman að fylgjast með ykkur!

  12. utiovissuna says:

    Heheh.. við fundum McDonald’s .. en það voru bara grænmetisborgarar … og við fundum Domino’s … þar voru líka bara grænmetispizzur (og reyndar rán-dýrar, svo við tímdum ekki að borða þar…)

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>