Jarðskjálfti á 2ja mínútna fresti, indverskur skyndibitamatur, skítugir veggir, blautar töskur og heilmikil eftirvænting. Velkomin inn á herbergið okkar á Heathrow Lodge

- Blautur farangur
Við erum núna að fara að sofa til að vakna… Jarðskjálftarnir eru risaþotur sem fljúga nokkrum metrum fyrir ofan hótelið og skekja jörð. Ef við missum af flugvélinni okkar, þá munum við amk heyra í henni…
Það tekur rétt rúman klukkutíma og 39 pund að keyra frá Gatwig að Heathrow með rútu. Á maps.google.com virtist þetta bara vera smá labbitúr, varla meira en frá Hlemmi að Lækjargötu.
Hér er svo smá skemmtun til að stytta ykkur stundir fram að næstu blog (blogg?) færslu…


Gaman að fá fréttir af ykkur. Hlakka til að heyra meira. Knús í klessu. Góða ferð.
Heathrow Lodge hljómar dásamlega! Ævintýri á hverju horni. Það er þó altjent netsamband eða hvað?
Gott að slárnar hafi komið að gagni, þessi rútuferð hljómar nú eins og eitthvað djók! jæja svona er london, þið hefðuð öruglega getað fengið Rasmahaan til að hjóla með ykkur í kringum Mumbai fyrir þennan pening…ég byð svo að heilsa kallinum þegar þið komist á leiðarenda !
gooóóða feeerðð !!!
Gaman að lesa um ævintýri ykkar
Og hreyfimyndin af Adda er eðal