Um helgina fórum við til Sonoma með Conrad, sem er vinur okkar sem við kynntumst á Indlandi. Conrad er strákur sem hefur í 5 ár unnið við að slökkva skógarelda í Kaliforníu, hann vinnur alveg rosalega mikið frá júní og fram í sept/okt og svo ferðast hann og klifrar það sem eftir er af árinu. Héví töff vinna og hann er komin með alveg nóg af því, skiljanlega, þar sem hann hefur ekki upplifað venjulegt sumar með vinum og fjölskyldu allt of lengi.
Um síðustu helgi var hann að fara með nokkrum vinum sínum í þeirra árlegu vínsmökkunar hópferð. Þetta eru krakkar sem voru saman í College í Idaho. Við hittum þau í heimahúsi rétt fyrir norðan San Francisco og fyrst héldum við að þetta væri svona 5 manns en svo komu alltaf fleiri og fleiri inn um hurðina og á endanum vorum við 13.
Það var ráðinn bílstjóri og mini rúta til að ferja hópinn á milli víngerða bóndanna (veit ekki hvað maður kallar þetta). Við höfum aldrei farið í svona og þessi ferð var víst ekki alveg típísk vínsmökkun þar sem það var “barrel tasting weekend”. Þá kaupir maður sér armband fyrir 40$ (loksins get ég notað þetta merki fyrir ofan 4) og svo fær maður kort með öllum víngerðarbæjunum sem eru þátttakendur. Á þessum bæjum er verið að gefa fólki smakk af því víni sem er að fara á flöskur svo það er búið að vera í tunnum í nokkra mánuði, flest voru frá 2010.
Við fórum yfir Golden Gate (Helga í fyrsta sinn). Hún er skemmtileg og það væri gaman að hjóla einn daginn. Það er mjög vinsæl hjólaleið því þegar maður er komin yfir hana tekur við eitthvað rosa fallegt ríkisbubbahverfi með skútum og fíneríi.
Þarna eru hnakkar.
Þetta “barrel tasting” er svona heví dutí vínsmökun, ekkert að skyrpa út úr sér og skola munninn, hvað þá glasið. Bara skella þessu í sig.
Já soldið svona útihátíðarsemning. Það voru samt bara allir að spjalla á þessari mynd þó það líti út fyrir að allir séu að dansa fugladansinn.
Já Helgu fannst þetta barasta fínt rauðvín. Svipað gott og það sem var í hinni tunnunni.
Addi og Conrad að tjilla. Addi smakkaði ekki neitt en hann fékk samt sprite og snarl. Þetta er síðasta myndin sem til er af peysunni sem hann heldur á, hún gleymdist nefninlega í þessum græna stól.
Hádegismatur með rauðvínsflösku.
Við og Conrad…voðalega erum við eitthvað mikið að knúsa hvert annað þarna. Greinilega glöð að hittast aftur.
Það voru mjög misjafnir “vín-bæjirnir”…þessi var mjög sveitó, bóndinn setti bara svona tvær keilur fyrir draslið sitt svo túristarnir færu nú ekki að gramsa í því. Flottur pallbíllinn!
Það er greinilega vetur því við sáum ekki eitt einasta vínber
Þetta er inn í einhverri skemmunni, nóg að víni. Þarna var einvígi, tvö vín að smakka og svo átti maður að gefa öðru hvoru stig.
Addi var búin að týna peysunni og hann sofnaði í grasinu. Helga var komin með ógeð á rauðvíni og sat bara í grasinu og tók myndir.
Gamli að reyna að leggja bílnum áns þess að rispa hann
Sólin farin að lækka…þetta er eins og kirkjugarður, þetta er samt rauðvín in the making…
Addi frekar nývaknaður og alveg að frjósa.
Smakki hópurinn, fremri röðin heldur greinilega að hún sé voða hávaxin. Allir að beigja sig eitthvað skringilega
Komin heim og dauðþreytt eftir heilan dag með fullt af ókunnugu og hressu fólki
Þetta er náttúrulega staðan hans Adda þegar hann bíður eftir einhverju. Hann spilar soduko af meiri ákafa eftir því hve svangur hann er…hann er sko að spila í tætlur þarna.
omnomnomnomnom…
Svo daginn eftir fórum við á bílskúrssölu og versluðum aðeins…salatskál, kokteilpinna og YAMAHA from the 80′s. Helga heldur á snúrukassanum.
Við erum svo miklir lúðar..
Þetta var bara fínasta drasl…virkaði vel með hljómgæðum í stíl við aldur og fyrri störf
Helgin er búin og daylight saving time gengið yfir svo nú eru aftur 7 tíma munur á okkur og Íslandi. Helga er að fara heim næstu helgi að gera visa pappírana klára. Það er hrikalega fyndið hvað verður í töskunni hennar á leiðinni…fullt af bleyjum, dvd diskar, lyf, bækur um líkamsþjálfun, neðansjávarmyndavél og fleira skemmtilegt dót.
Þetta fer á veraldarvefinn án allt yfirlestrar. Það verður lagað síðar ef þörf þykir.
yfir og út!!




















